
Sú áætlun sem verið er að fara eftir víða um heim sem miðar að því að reisa svokallaðar fimmtán mínútna borgir eru í raun áætlun um að reisa fangelsisborgir. Fangelsisborgirnar eru hringrásarkerfi í ákveðnum hverfum og íbúar lokast þar inni. Þetta var meðal þess sem fram kom í Menntaspjallinu í dag en þar voru gestir Valgerðar Jónsdóttir þeir Leifur Árnason flugstjóri og Logi Kjartansson lögmaður.
Fimmtán mínútna borgir eru þannig úr garði gerðar að fólki sem í þeim býr er í raun ekki ætlað að fara nema í mesta lagi 15 mínútna fjarlægð frá heimilum sínum. Auk þess er þessu sama fólki ætlað að nota helst almenningssamgöngur enda er nánast útilokað að ferðast um þær á einkabílum vegna mikilla takmarkana á umferð og innheimtu veggjalda um þá vegi sem um þær liggja.
Fólk lokast inni í fangelsisborgunum
Fimmtán mínútna borgirnar eru þannig í raun tæki til þess að stýra og stjórna almenningi og takmarka möguleika fólks á því að geta ráðið því sjálft hvaða ferðamáta það kýs að nota sem og beina því aðeins að þeirri þjónustu sem hægt sé að fá í göngufæri við heimili þess.
15 mínútna borgirnar eru sagðar til að bjarga heimatilbúinni loftlagsvá
Þetta fyrirkomulag er svo sett í þann búning að þetta eigi að bjarga á einhvern hátt jörðinni frá hinni heimatilbúnu loftlagsvá sem áróðursmeistarar erlendra alþjóðastofnana leggja mikla áherslu á að eigi eftir að tortíma mannkyninu hlýði almenningur ekki fyrirmælum þeirra í einu og öllu.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan
