Sagt er frá samstarfinu í tilkynningu á vef Lyfjastofnunar. Eins og þar kemur fram er hugmyndin með samráðsnefndinni að koma á óformlegum vettvangi sem miðar að því að fá betri yfirsýn, miðla þekkingu og deila verkefnum í því skyni að stuðla að sameiginlegum lausnum. Löndin sem þegar taka þátt í starfinu eru Danmörk, Ísland, Noregur og Svíþjóð. Fulltrúar Íslands eru Hulda Harðardóttir, Landspítala, og Einar Magnússon, velferðarráðuneytinu.
Vinnuhópar á vegum NLF skoða m.a. forspá vegna innleiðingar nýrra lyfja (horizon scanning), öryggi markaðarins, og möguleika á sameiginlegum útboðum og/eða verðsamningum vegna lyfjakaupa í því skyni að lækka innkaupskostnað. Í sumar var hafist handa við að kanna möguleikana á þessu, m.a. með tilliti til lagalegra sjónarmiða í hverju landi. Fram kemur í tilkynningu að frekari ákvörðunar sé að vænta í byrjun næsta árs.