Forsætisráðherra fundaði með forseta framkvæmdastjórnar ESB – Tímabundnar undanþágur vegna losunarheimilda í flugi

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra átti í gær fund með Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu.

Á fundinum ræddu þær stöðuna í viðræðum Íslands og ESB um aðlögun varðandi upptöku gerðar um breytingar á viðskiptakerfi með losunarheimildir fyrir flug í EES-samninginn, en undanfarið hafa viðræður íslenskra stjórnvalda og framkvæmdastjórnar ESB um málið átt sér stað. Ísland fær undanþágur í tvö ár.

Staða EES-samningsins var einnig rædd á fundinum en á næsta ári verða 30 ár liðin frá því að samningurinn tók gildi. Greindi forsætisráðherra frá því að fyrirhugað væri að minnast  þeirra tímamóta. Þá ræddu þær leiðtogafund Evrópuráðsins sem verður settur nú síðdegis, stöðuna í Úkraínu og  málefni Íslands og ESB. Að fundinum loknum var boðað til blaðamannafundar þar sem forsætisráðherra og forseti framkvæmdastjórnar ESB svöruðu spurningum fjölmiðla.

Fyrr um daginn átti forsætisráðherra tvíhliðafundi með Gitanas Nauseda, forseta Litháen, Daniel Risch, forsætisráðherra Liechtenstein og Alain Berset, forseta Sviss og fóru fundirnir  allir fram í Stjórnarráðshúsinu.

Á fundi forsætisráðherra með forseta Litháen, var m.a. rætt um fyrirhugaðan leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins sem fram fer í Vilníus í júlí. Þar verða málefni Úkraínu og áframhaldandi stuðningur í forgrunni.

EES-samningurinn og 30 ára afmæli hans á næsta ári voru meðal umræðuefna á fundi forsætisráðherra og forsætisráðherra Liechtenstein. Leiðtogafundur Evrópuráðsins var einnig til umræðu en Liechtenstein tekur við formennsku í ráðinu í nóvember nk. á eftir Lettlandi sem tekur við af Íslandi við lok leiðtogafundarins.

Forsætisráðherra og forseti Sviss, ræddu á fundi sínum samskipti ríkjanna og samstarf á vettvangi Fríverslunarsamtaka Evrópu. Auk umræðu um leiðtogafundinn og málefna Úkraínu var rætt um mögulegt samstarf á sviði umhverfis- og loftslagsmála.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila