Forvarnasamtök senda frá sér yfirlýsingu vegna netsölu áfengis

Forvarnarsamtök hafa gefið út yfirlýsingu vegna umræðu um netsölu áfengis og framkvæmd gildandi áfengislaga. Í yfirlýsingunni er vísað til langrar málsmeðferðar kærumáls sem nú er komið á dómsstig og sett fram sjónarmið um áhrif þess á lýðheilsu og vernd barna og ungmenna.

Í yfirlýsingunni kemur fram að í rúm fimm ár hafi nokkur frjáls félagasamtök átt samstarf um að vekja athygli stjórnvalda og almennings á því sem þau telja vera alvarlega stöðu í framkvæmd áfengislaga. Tilefnið sé kæra Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins til lögreglu frá 16. júní 2020 vegna netsölu áfengis af hálfu innlendra aðila. Samtökin telja að netsalan feli í sér yfirstandandi lýðheilsuógn og ógni sérstaklega vernd barna og ungmenna.

Málið komið á dómsstig eftir fimm ára bið

Samkvæmt yfirlýsingunni hefði kærumálið getað lokið á árunum 2020 eða 2021 ef því hefði verið sinnt á þeim tíma. Málið hafi hins vegar dregist og sé fyrst nú komið á dómsstig hálfum áratug síðar.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lauk rannsókn málsins síðastliðið haust sem leiddi til þess að netsöluaðili var ákærður til Héraðsdóms Reykjaness í september 2025. Gert er ráð fyrir að aðalmeðferð málsins fari fram 12. janúar næstkomandi.

Leitað til Alþingis vegna seinagangs

Forvarnarsamtökin segja að í ljósi dráttarins hafi verið leitað til fjölda opinberra aðila og stofnana. Þar á meðal hafi verið sent erindi til stjórnsýslu- og eftirlitsnefndar Alþingis þar sem gerðar hafi verið athugasemdir við vinnubrögð yfirvalda og mögulega ráðherraábyrgð. Málið hafi verið tekið fyrir í nefndinni en enn ekki hlotið niðurstöðu.

Samtökin segja að þessi meðferð endurspegli skort á eftirfylgni með gildandi löggjöf á sama tíma og umfang netsölu áfengis hafi aukist verulega.

Breið samstaða heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka

Í yfirlýsingunni er jafnframt vísað til þess að myndast hafi breið samstaða meðal heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka um að hvetja stjórnvöld til að hafa lýðheilsu og vernd barna og ungmenna að leiðarljósi. Þessi samstaða hafi meðal annars birst í opinberum áskorunum þar sem varað hafi verið við aukinni netsölu áfengis og samfélagslegum afleiðingum hennar.

Þar kemur einnig fram að þessi breiðfylking hafi bent á að ríkið geti sparað verulegar fjárhæðir með því að koma í veg fyrir ólögmæta áfengissölu einkaaðila þar sem kostnaður vegna afleiðinga neyslu falli annars á samfélagið í heild.

Gagnrýna ágenga markaðssetningu áfengis

Forvarnarsamtökin gagnrýna sérstaklega markaðssetningu áfengis sem þau segja vera orðin sífellt ágengari í fjölmiðlum á samfélagsmiðlum og í tengslum við íþróttaviðburði. Í yfirlýsingunni er bent á að mikil fjárhagslegir hagsmunir séu í húfi og að velta netsölu áfengis nemi þegar milljörðum króna.

Samtökin segja að almenningur sitji eftir með kostnaðinn vegna afleiðinga neyslunnar þar sem skattfé sé notað til að mæta þeim samfélagslegu áhrifum sem henni fylgi.

Ráðherrar segja lögin skýr

Í yfirlýsingunni er jafnframt vísað til ummæla ráðherra þar sem því hafi verið haldið fram að netsala áfengis sé ólögmæt og að gildandi áfengislög séu skýr. Forvarnarsamtökin segja þessi sjónarmið staðfesta að ágreiningurinn snúist ekki um lagalega óvissu heldur um framkvæmd laga og eftirfylgni þeirra.

Beðið niðurstöðu dómstóla

Forvarnarsamtökin segja niðurstöðu dómstóla nú vera handan við hornið eftir meira en fimm ára bið. Vonast er til þess að málið fái niðurstöðu sem taki mið af lýðheilsusjónarmiðum vernd barna og ungmenna og samfélagslegri ábyrgð.

Verði niðurstaðan sú að málið tapist telja samtökin að löggjafinn verði að endurskoða áfengislöggjöfina í heild og taka skýra afstöðu til þess í hvaða átt stefna stjórnvalda eigi að þróast til framtíðar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila