Bruðl hins opinbera, Stefnuræða Katrínar Jakobsdóttur og stjórnmálin í Bandaríkjunum var meðal þess sem rætt var um í þættinum Fréttir vikunnar í dag en þar fóru þeir Pétur Gunnlaugsson, Haukur Hauksson og Styrmir Gunnarsson yfir helstu fréttir þessarar viku.
Í þættinum kom meðal annars að hægt væri að taka á bruðli hjá hinu opinbera til dæmis með því að fækka sendiráðum. Setning þingsins fór fram í vikunni og fram fóru fjörugar umræður um stefnuræðu Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra en óhætt er að segja að Styrmi fannst lítið til málflutnings þingmanna koma
“ þetta eru innihaldslausar ræður um nákvæmlega ekki neitt„,sagði Styrmir.
Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan