
Frumvarp til laga um loftslagsmál hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda.
Með frumvarpinu er lagt til að sett verði ný heildarlög um loftslagsmál. Meðal annars er gert ráð fyrir að fara þurfi yfir kafla laganna með það að markmiði að uppfæra ákvæði sem fyrir eru, svo sem ákvæði um loftslagsráð og loftslagsstefnu og eftir atvikum fella brott eða bæta við nýjum ákvæðum.
Þá telja stjórnvöld nauðsynlegt að endurskoða ákvæði vegna loftslagsaðgerða þ.e. aðgerðaáætlun
í loftslagsmálum og aðlögunaráætlun með það að markmiði skýra hlutverk og samsetningu
verkefnisstjórnar sem og skyldur samkvæmt báðum áætlunum. Jafnframt þurfi að skoða hver
aðkoma Alþingis að báðum áætlunum eigi að vera.
Einnig verður tekið til skoðunar ákvæði um loftslagsstefnu ríkis og sveitarfélaga í virku samtali við
viðeigandi hagaðila og kanna þörf á nánari útfærslu fyrirkomulags og ábyrgðarskiptingar. Eins
mun fara fram endurskoðun ákvæðis um skýrslu um áhrif loftslagsbreytinga á Íslandi og tengsl hennar
við samstarf Íslands og milliríkjanefndar um loftslagsbreytingar (IPCC) út frá ábendingum
vísindanefndar um loftslagsbreytingar. Telja stjórnvöld að þar gæti einnig verið þörf á skýrari lagastoð og
reglugerðarheimild vegna vinnu þvert á þær stofnanir sem veita loftslagsþjónustu.
Smelltu hér til þess að kynna þér málið nánar.
