Frumvarp um takmörkun á beitingu nauðungar birt í samráðsgátt

Heilbrigðisráðherra hefur birt til umsagnar drög að frumvarpi um breytingar á lögum um réttindi sjúklinga. Með frumvarpinu er stefnt að því að lögfesta meginregluna um bann við beitingu nauðungar í heilbrigðisþjónustu og setja skýran lagaramma um verklag þegar nauðsynlegt þykir að víkja frá meginreglunni. Lagt er til að skilgreind verði nauðung og fjarvöktun auk málsmeðferðarreglna sem fylgja skal þegar slík inngrip eru beitt.

Markmið frumvarpsins er að tryggja betur réttindi sjúklinga og er það liður í viðbrögðum við athugasemdum umboðsmanns Alþingis og ítrekuðum tilmælum alþjóðlegra eftirlitsaðila um að skýr löggjöf sé nauðsynleg á þessu sviði.

Frumvarpið endurunnið eftir samráð við notendahópa

Frumvarpið var áður lagt fram á Alþingi en var dregið til baka vegna athugasemda hagsmunasamtaka sjúklinga um skort á samráði. Í kjölfarið setti ráðherra á fót samráðshóp með fulltrúum frá Geðhjálp, Landssambandi eldri borgara, Hugarafli, Öryrkjabandalagi Íslands og Landssamtökunum Þroskahjálp auk tveggja fulltrúa ráðuneytisins. Drögin sem nú liggja fyrir hafa verið uppfærð með hliðsjón af tillögum þessa hóps.

Bann við nauðung nema brýna nauðsyn beri til

Verði frumvarpið að lögum verður meginreglan sú að beiting nauðungar í heilbrigðisþjónustu sé óheimil nema brýna nauðsyn beri til og verður hún þá háð skýrum fyrirmælum laganna. Sérstakar reglur verða settar um börn undir 18 ára aldri til að tryggja hagsmuni þeirra og réttindi.

Frestur til umsagna til 24. október

Frestur til að skila inn umsögnum um frumvarpið í samráðsgátt stjórnvalda er til 24. október næstkomandi.

Smelltu hér til þess að skoða málið í samráðsgátt

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila