Fullveldið fær öflugan stuðningsmann: Arnar Þór Jónsson dómari gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins

Arnar Þór Jónsson lætur ekki staðar numið við orðin tóm heldur hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjör Sjálfstæðisflokksins 4.-5. júní n.k. í Suðvesturkjördæmi. Ætlar Arnar Þór að láta á reyna, hvort stuðningur sé við hann til að glíma við gengisfellingu lýðræðisins í stjórnskipun Íslands, sem birtist bæði í þrengingu málfrelsis og framsali fullveldis til ókjörinna embættismanna og Evrópusambandsins.

Hafa margir, einnig fyrir utan Sjálfstæðisflokkinn, lýst yfir ánægju með framboð hans, þannig að hann hvetur fólk til að skrá sig í flokkinn og kjósa hann í prófkjörinu svo hann fái tækifæri að nota þekkingu sína á vettvangi stjórnmálanna og Alþingis. Arnar Þór Jónsson var viðmælandi Arnþrúðar Karlsdóttur útvarpsstjóra í síðdegisþætti Útvarps Sögu í dag og var farið yfir víðan völl í þýðingarmestu málum þjóðarinnar frammi fyrir Alþingiskosningum seinna í ár.

Viturlegra að nota tímann til að ræða stóru málin en eltast við þýðingarminni smámál

Arnar Þór lætur lýðræði og réttindi einstaklingsins sig miklu varða og vék nokkrum sinnum að mikilvægi þess að venjulegt fólk sofi ekki á verðinum heldur virki sig í umræðunum. Þegar upp er staðið byggir stjórnarskráin á lýðræði þjóðarinnar og ef þjóðin hættir að láta sig málin skipta gæti lýðræðið beðið ósigur og tjón þjóðarinnar orðið mikið. Benti Arnar Þór m.a. á að „ESB er allt annað samband í dag en það bandalag sem Íslendingar gerðu EES-samning við ár 1992″ og „menn hafa verið of uppteknir við að ræða málin í einstökum sneiðum í stað þess að sjá heildarþróunina frá því EES-samningurinn var gerður. Nær væri að ræða þessi stóru mál heldur en að leggja dag við dag í blaður um smámál á Alþingi.“ Lýsti hann því berum orðum hvernig reynt hafi verið að fá hann til að þegja en eins og kunnugt er sagði Arnar Þór Jónsson sig úr Dómarafélaginu. Sagði Arnar, að hann hefði getað kosið að vera áfram utanvið stjórnmálin en vegna þessa hættulega ástands sem lýðveldið er komið í, velur hann að gefa kost á sér til að takast á við fullveldis- og lýðræðismálin.

Leyndir bóluefnasamningar vottur um skort á lýðræði

Arnþrúður Karlsdóttir tók upp spurninguna um leyndina yfir samningum Íslands við ESB um bóluefni vegna covid-19 og taldi Arnar Þór Jónsson að „engin þörf er á því að fela sig á bak við yfirþjóðlegt vald, heldur eiga Íslendingar sem sjálfstæð þjóð að ákveða sjálfir út frá eigin hagsmunum hvernig standa ber að málunum. Ég byrjaða að tala um þetta í ágúst í fyrra, að þetta ótempraða embættismannavald samrýmist ekki lýðræðiskröfum um gegnsæi sem gilda í dag. Við kjósum okkur fulltrúa á þing en svo eru völdin framseld áfram til embættismanna eða burt út úr landinu erlendis.“

Telur málin varðandi ESB-umsóknina hættulega loðin og umsóknin enn í gildi. Gætum „týnt hendinni“

„Mér sýnist að við séum skráð sem þjóð í umsóknarferli en málin varðandi umsóknina og allt umsóknarferlið eru óljós, svo þjóðin gerði réttast í því að ræða hispurslaust um hvar við stöndum og taka ákvörðun í samræmi við það.“ Lýsti Arnar Þór því að „við verðum að vera vakandi frá fyrstu tíð í hagsmunamálum okkar, því annars gætum við týnt hendinni.“ Gerði hann samanburð á því að t.d. „ef maður missir höndina í fiskvinnsluvél getur verið erfitt að fá höndina aftur til baka.“ Ein leið vegna yfirgangs embættismanna í Brussel gæti verið að segja upp EES-samningnum og endursemja tvíhliða líkt og Bretar hafa gert.

ESB-módelið gamaldags – ekki frjáls viðskipti að þurfa að framselja fullveldið til að gera viðskipti – að ganga úr ESB fellur betur að nútímanum eins og Bretar hafa sýnt

Sagði Arnar Þór að rök um „nútíma starfshætti“ sem útskýringu á því að láta erlend ríki stjórna lögum á Íslandi væru í raun gamaldags… „Er ekki bara ESB gamaldags? Þetta er ekki batterí með frjáls viðskipti.“ Hvatti hann hlustendur til að láta ekki slá ryk í augu sér með innantómum frösum.

Arnþrúður Karlsdóttir þakkaði Arnari Þór Jónssyni kærlega fyrir komuna og Útvarp Saga óskar Arnari brautargengis í komandi prófkjöri.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila