Fyrirhuga lagabreytingu svo Orkuveitan geti átt hlut í félögum sem tengjast Carbfix aðferðinni

Umhverfis, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda drög að frumvarpi til breytinga á lögum um Orkuveitu Reykjavíkur.

Markmið með frumvarpsdrögunum er að tryggja lagaheimild Orkuveitu Reykjavíkur til að eiga hlut í félögum sem tengjast Carbfix- aðferðinni. Carbfix aðferðin felst í að leysa koldíoxíð í vatni og dæla því niður í basaltsberggrunn þar sem náttúrulegt ferli er notað til að steinrenna því til frambúðar. Við þróun tækninnar var stuðst við rannsóknir, búnað, aðstöðu og þekkingu Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfélaga.  

Sveitarfélögin sem eiga Orkuveitu Reykjavíkur, stjórn fyrirtækisins og stjórn Carbfix telja æskilegt að stofna hefðbundið hlutafélag, Carbfix hf., um rekstur tækninnar, eigi hugmyndir félagsins um framtíðarnýtingu Carbfix aðferðarinnar fram að ganga.

Verkefni Orkuveitu Reykjavíkur og dótturfélaga eru tilgreind í lögum um Orkuveitu Reykjavíkur sem skilgreinir kjarnastarfsemi þeirra. Þar er einnig áskilið að önnur verkefni séu heimil, svo fremi sem í þeim sé nýtt þekking og rannsóknir félaga innan samstæðu Orkuveitu Reykjavíkur enda tengist þau kjarnastarfsemi fyrirtækisins. Meðsamþykkt frumvarpsins myndu verða tekin af öll tvímæli um að Carbfix aðferðin teljist til slíkra verkefna.

Smelltu hér til þess að kynna þér drögin að frumvarpinu

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila