Fyrrum hershöfðingi: Nató gæti farið að senda herþotur til Úkraínu

Rússneskar herþotur af gerðinni MIG-29. Mynd©Nicky Boogaard CC 2.0.

James Stavridis, bandarískur aðmíráll á eftirlaunum og fyrrum æðsti herforingi Nató í Evrópu, heldur því fram, að leiðtogar Nató-ríkjanna íhugi nú að senda háþróaðar stríðsþotur til Úkraínu.

Dusta rykið af gömlu hugmyndinni að senda F-16 og MiG 29 stríðsþotur til Úkraínu

Hann skrifar í grein á Bloomberg, að bráðlega verði Úkraína vopnuð með stríðsþotum af F-16 og MiG-29 gerðinni. Bandaríkin hafa offramboð af F-16 og því auðvelt mál að útvega þær á meðan MIG-29 eru þegar tilbúnar og notaðir í nágrannalandinu Póllandi. Hann skrifar:

„Leiðtogar í höfuðborgum Nató snúa aftur til þeirrar hugmyndar sem var hafnað á fyrstu dögum stríðsins: að útvega annað hvort MiG-29 stríðsþotur frá Sovétríkjunum (Pólverjar hafa boðist til að afhenda þær til Úkraínu) eða jafnvel offramleiðslu af F-16.“

Samkvæmt Stavridis er létt fyrir úkraínska flugmenn að læra að fljúga báðum gerðunum. Aðmírállinn fyrrverandi er sannfærður um, að Nató muni að lokum ganga til móts við beiðni Volodymyr Zelenskyj forseta Úkraínu um að loka loftrými landsins og senda mikinn fjölda háþróaðra eldflaugakerfa og einnig ísraelska loftvarnakerfið „Iron Dome.“

Vesturlönd hafa ekki viljað senda herþotur m.a. vegna þrýstings frá Kína

Þrátt fyrir að Stavridis segi ekki frá því hvar hann fékk upplýsingarnar, má benda á þá staðreynd, að grein hans birtist sama dag og utanríkisráðherrar Nató-ríkjanna hittust í Rúmeníu til að ræða áframhaldandi stuðning hernaðarbandalagsins við Úkraínu. Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO, opnaði fundinn með því að höfða til aðildarríkjanna um að auka stuðning við Úkraínu og senda frekari herbúnað til úkraínska hersins. Stoltenberg lagði áherslu á, að „Rússland megi ekki fá að sigra á vígvellinum.“

Hingað til hafa Vesturlönd neitað að senda stríðsþotur, þrátt fyrir áköll Zelenskís og samkvæmt ýmsum greiningaraðilum er það að hluta til vegna þrýstings frá Kína. Einnig hafa menn áhyggjur að því, hver viðbrögð Rússlands yrðu. Stavridis telur ennfremur að Vesturlönd verði að auka stuðning sinn við loftvarnir Úkraínu, því að öðrum kosti muni Rússland vinna loftstríðið að lokum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila