
David Morens fyrrverandi aðstoðarmaður Anthony Fauci fyrrverandi sóttvarnarlæknis Bandaríkjanna, hefur verið ákærður fyrir að hindra framgang réttvísinnar og taka þátt í samsæri með því að hafa leynt opinberum gögnum um rannsóknir á veirum á borð við þá sem olli Covid-faraldrinum. Þetta kemur fram í frétt Politico.
Ákærður fyrir 3 alvarleg brot
David Morens, 78 ára, var ákærður af alríkis-kviðdómi í Greenbelt í Maryland í Bandaríkjunum, fyrr í mánuðinum fyrir 3 alvarleg brot. Hann er sakaður um að hafa notað Gmail-reikning til að fela opinber samskipti sem tengdust umdeildum, alríkisfjármögnuðum rannsóknum á kórónuveirum í leðurblökum. Ákæran var gerð opinber á mánudag þegar Morens mætti stuttlega fyrir dóm og var látinn laus gegn eigin ábyrgð, samkvæmt dómsskjölum.
Torveldaði aðgang að upplýsingum
Samkvæmt ákærunni sendi og tók Morens á móti tölvupóstum í gegnum einkareikning sinn til að torvelda þeim sem lögðu fram beiðnir samkvæmt Freedom of Information Act, aðgang að upplýsingum um svokallaðar „gain-of-function“-rannsóknir, þar sem sýklar eru gerðir hættulegri eða smitnæmari í rannsóknarskyni.
Eftir að Covid-faraldurinn braust út bárust að minnsta kosti átta slíkar upplýsingabeiðnir frá aðilum á borð við Science Magazine, Judicial Watch og Heritage Foundation, samkvæmt ákærunni.
Var háttsettur ráðgjafi Fauci
Morens starfaði sem háttsettur ráðgjafi hjá Anthony Fauci, fyrrverandi forstjóra National Institute of Allergy and Infectious Diseases, sem er hluti af NIH. Fauci var sóttvarnarlæknir Bandaríkjanna og eitt helsta andlit viðbragða við Covid-19 faraldrinum og naut bæði stuðnings og gagnrýni, meðal annars frá repúblikönum og núverandi heilbrigðisráðherra Robert F. Kennedy Jr.
Vísað til samverkamanna
Í ákærunni er vísað til tveggja samverkamanna sem ekki hafa verið ákærðir og eru ekki nafngreindir. Gögn sem birt hafa verið í þingrannsóknum benda þó til að um sé að ræða Peter Daszak, dýrafræðing og fyrrverandi forseta EcoHealth Alliance, og Gerald Keusch, lækni og fyrrverandi aðstoðarforstjóra smitsjúkdómadeildar Boston-háskóla.
Lögmaður Morens neitaði að tjá sig um málið. Keusch og lögmenn Daszak svöruðu ekki fyrirspurnum um málið.
Bæði repúblikanar og demókratar gagnrýndu Morens harðlega á fundi þingnefndar árið 2024 og sögðu að framkoma hans sýndi vanvirðingu fyrir rétti almennings til upplýsinga. Þá hafi hann virst hafa eytt tölvupóstum sem tengdust málinu.
Lærði hvernig ætti að láta tölvupósta hverfa
Í ákærunni er þó ekki fullyrt að Morens hafi í raun eytt opinberum gögnum, en vísað er til skilaboða frá árinu 2021 þar sem hann segir: „Ég lærði frá FOIA-sérfræðingi hér hvernig á að láta tölvupósta hverfa eftir að FOIA-beiðni berst en áður en leit hefst, svo ég held að við séum öll örugg. Auk þess eyddi ég flestum eldri tölvupóstum eftir að hafa sent þá á Gmail.“
Á fundinum sagði Morens að hann hefði aldrei fengið slíkar leiðbeiningar. Hann sagðist einnig hafa reynt að nota ekki einkapóst til opinberra erinda og að ummæli hans um eyðingu hafi einungis átt við persónuleg skilaboð.
„Gripum hann glóðvolgan“
Nokkrir þingmenn höfðu áður kallað eftir rannsókn dómsmálaráðuneytisins á Morens, þar á meðal öldungadeildarþingmaðurinn Rand Paul sem sendi Merrick Garland bréf í maí 2024 þar sem vísað var til „sterkra gagna um að dr. Morens hafi brotið alríkislög með því að fela og eyða opinberum gögnum.“
Formaður eftirlitsnefndar fulltrúadeildarinnar, James Comer, fagnaði ákærunni í yfirlýsingu á þriðjudag.
„Við gripum dr. Morens glóðvolgan,“ sagði Comer. „Ég fagna því að dómsmálaráðuneytið grípi til aðgerða til að draga þennan opinbera starfsmann til ábyrgðar fyrir að fela upplýsingar fyrir bandarísku þjóðinni.“
