
Fyrrverandi varaforseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og æðsti utanríkisfulltrúi sambandsins, Federica Mogherini, hefur verið handtekin í Belgíu vegna rannsóknar á meintri misnotkun fjármuna ESB. Frá þessu er greint í belgískum og frönskum fjölmiðlum. Fjallað er um málið í Financial Times í dag.
Húsleit hjá utanríkisþjónustu ESB og Háskóla Evrópu
Belgíska lögreglan hefur gert húsleit í höfuðstöðvum Evrópsku utanríkisþjónustunnar í Brussel, þar sem Mogherini veitti stofnuninni forstöðu á árunum 2014–2019 og við Háskóla Evrópu í Brugge, þar sem hún hefur gegnt starfi rektors frá árinu 2020. Leitað var einnig á nokkrum heimilum. Samkvæmt upplýsingum frá Evrópsku saksóknaraskrifstofunni voru gögn gerð upptæk og þrír einstaklingar teknir í hald, grunaðir um innkaupasvik, spillingu og refsiverðan hagsmunaárekstur.
Fleiri háttsettir embættismenn innan ESB meðal handtekinna
Heimildir evrópskra miðla herma að Mogherini sé meðal hinna handteknu. Einnig hefur Stefano Sannino, háttsettur embættismaður ESB sem gegndi embætti framkvæmdastjóra utanríkisþjónustunnar þegar Diplómataskóli ESB var stofnaður og stýrir nú málefnum Mið-Austurlanda, Norður-Afríku og Persaflóa hjá framkvæmdastjórn ESB, verið handtekinn. Þá er starfsmaður úr endurmenntunardeild Háskóla Evrópu sagður hafa verið handtekinn.
Grunur um rangar upplýsingar í útboðsferli
Rannsóknin beinist einkum að fasteignakaupum Háskóla Evrópu við Spanjaardstraat í Brugge árið 2022, þegar skólinn keypti húsnæði fyrir 3,2 milljónir evra. Skömmu síðar hlaut hann 654 þúsund evra styrk frá Evrópsku utanríkisþjónustunni. Yfirvöld grunar að skólinn eða fulltrúar hans hafi haft aðgang að trúnaðargögnum sem mögulega hafi raskað jafnræði og brenglað samkeppni í útboðsferli. Engar formlegar ákærur hafa verið gefnar út að svo stöddu.
Saksóknarar kanna jafnframt hvort Háskóli Evrópu eða fulltrúar hans hafi haft innherjaupplýsingar um útboð á rekstri Diplómataskóla ESB, þjálfunarprógrammi fyrir evrópska diplómata í Brugge sem er fjármagnað af Evrópsku utanríkisþjónustunni.
Háskóli Evrópu undir smásjá
Háskóli Evrópu, sem stofnaður var árið 1949, er talinn helsta þjálfunarstöð Evrópusambandsins fyrir verðandi embættismenn og diplómata. Fjölmargir fyrrverandi nemendur skólans hafa síðar gegnt áhrifamiklum stöðum innan stofnana ESB.
