Gates og Epstein ræddu heimsfaraldurinn og aðkomu alþjóðastofnana á árinu 2015

Tölvupóstar úr Epstein skjölunum sem dagsettir eru í mars 2015 og sjá má mynd af hér neðst í fréttinni sýna samskipti milli Bill Gates og Jeffrey Epstein þar sem rætt er um undirbúning vegna mögulegs heimsfaraldurs og hvernig mætti fá Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina og bandarískar sóttvarnastofnanir formlega að verkefnnum í tengslum við það. Í samskiptunum má sjá efnislínuna Preparing for pandemics ásamt viðhengjum sem vísa til fundardagskrár um viðbrögð við faröldrum og skipulagningu funda í Genf.

„I hope we can pull this off“

Í tölvupóstunum er rætt um næstu skref í framkvæmd og hvernig opinberar heilbrigðisstofnanir yrðu tengdar verkefninu. Orðalagið „I hope we can pull this off“ kemur fram í samskiptunum og bendir til þess að unnið hafi verið að tiltekinni áætlun eða skipulagi á þeim tíma. Samskiptin sýna að umræðan snerist um formlega þátttöku WHO vegna heimsfaraldurs sem Epstein og Bill Gates virðast hafa við af að ætti eftir að skella á.

Fjármagnaði bólusetningarverkefni

Bill Gates hefur í gegnum Bill & Melinda Gates Foundation verið einn stærsti einkafjármögnunaraðili alþjóðlegra heilbrigðisverkefna á undanförnum áratugum. Sjóðurinn hefur veitt umfangsmikla styrki til bólusetningarverkefna, meðal annars vegna Covid.

Tengslin við WHO

Meðal helstu samstarfsaðila og styrkþega sjóðsins er Gavi – The Vaccine Alliance, alþjóðlegt samstarfsverkefni sem miðar að því að miðla bóluefnum í þróunarríkjum og hefur . Gavi starfar í nánu samstarfi við Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina (WHO), UNICEF og The World Bank auk fjölmargra lyfjaframleiðenda og ríkja. Gates-sjóðurinn hefur jafnframt verið um árabil meðal stærstu styrktaraðila WHO og haft áhrif á fjármögnun ákveðinna heilbrigðisáætlana innan stofnunarinnar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila