Anna Kolbrún Árnadóttir þingmaður Miðflokksins hefur óskað eftir fundi í Velferðarnefnd Alþingis vegna alvarlegrar stöðu í geðheilbrigðismálum þjóðarinnar. Í tilkynningu frá Önnu Kolbrúnu kemur fram að hún óski eftir að heilbrigðisráðherra verði kallaður á fundinn auk frakvæmdastjóra geðsviðs Landspítalans
„Einnig óska ég eftir því að fá aðila frá hagsmunasamtökum, nefni Geðhjálp og Hugarafl. Nú í sumar var einni bráðageðdeild lokað á Landspítala vegna manneklu og sparnaðar og er það með öllu óásættanlegt, við lesum í fjölmiðlum um ungt fólk sem hefur tekið eigið líf og nú er tími til kominn til aðgerða og það er í okkar höndum í Velferðarnefnd Alþingis að sjá til þess að það verði gert.“,segir í tilkynningunni.