Glæpatíðnin í Svíþjóð er mun meiri en fólk sem ekki býr þar getur nokkurn tíma ímyndað sér, en eins og greint hefur verið frá herja erlend glæpagengi bæði á íbúa í Svíþjóð og sænska velferðarkerfið.
Í þættinum Heimsmálin, fréttir og fréttatengt efni af erlendum vettvangi var rætt við Gústaf Skúlason sem búsettur hefur verið í Stokkhólmi í áratugi þar sem hann lýsti ástandinu.
Fram kom í máli Gústafs að á aðeins síðustu 13 dögum hafi til dæmis verið gerðar 18 skotárásir, þá er mörgum í fersku minni þegar ungum drengjum var nauðgað í kirkjugarði af erlendum glæpamönnum, þá hefur oft slegið í brýnu á milli glæpagengja og er nú svo komið að lögreglan, sem er afar máttvana gagnvart ástandinu varar við áframhaldandi þróun
“ þeir eru hreinlega að vara við því að hér getur orðið stríð á milli hópa af ólíku þjóðerni og afleiðingarnar af því geta orðið mjög alvarlegar„,segir Gústaf.
Gústaf hefur bent á í áraraðir að ástandið hafi verið með þessum hætti en stjórnvöld hafi ekki viljað viðurkenna það og þaggað niður í gagnrýnisöddum, einnig hafi stóru miðlarnir ekki viljað greina frá
„ en núna eru stjórnvöld farin að viðurkenna vandann að einhverju marki og stóru fjölmiðlarnir byrjaðir að fjalla um þessi mál.„
Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.