
Gosbeltið sem liggur um landið nær allt frá Reykjaneshrygg, þaðan upp á Reykjanes og þvert norður yfir landið og liggur út í Skjálfanda. Á þessu belti getur gosið hvar sem er því beltið liggur á milli fleka sem færast hver frá öðrum um tvo sentímetra á ári og upp í bilið fyllist kvika. Þetta segir Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands en hann var gestur í þætti Arnþrúðar Karlsdóttur.
Þorvaldur segir á þessu svæði öllu sé eldvirkni og því geti í raun gosið hvar sem er á beltinu en svæðin séu misvirk hverju sinni. Núna sé mikil virkni á Reykjanesinu og sú virkni getur svo færst til meðal annars norður eftir gosbeltinu. Meðal annars liggur sprungubeltið í gegnum þéttbýli og er hægt að nefna Húsavík sem dæmi.
Ísland ein af öflugustu eldstöðvum heims
Það eru margar breytur sem stjórna því hversu mikil virknin er hverju sinni og segir Þorvaldur að það sé svo að Ísland sé ofan á möttulstrók sem sé misvirkur en þegar hann sé mjög virkur þýði það tíðari og stærri gos. Hann bendir á að kraftar þessa möttustróks sé gríðarlegur og hann sé ástæða þess að Ísland standi upp úr Atlantshafshryggnum. Möttulstrókurinn sé léttari en umhverfi sitt sem gerir það að verkum að hann hefur lyft Íslandi og landgrunninu upp í kringum 5000 metra upp fyrir umhverfi möttulstróksins. Möttulstrókurinn lyfir þó ekki einungis Íslandi því hann hefur í raun áhrif á allan Atlantshafshrygginn sem nær langt suður í höf og lyftir honum um 2500 metra.
Þorvaldur segir að mælingar sýni að landris sé í raun á Íslandi öllu og margir túlki það sem svo að það sé vegna bráðnunar jökla en Þorvaldur segist frekar telja landrisið vera frekar vegna aukinnar virkni möttulstróksins.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan. Fyrir neðan spilarann má svo sjá kort frá Vísndavefnum þar sem sjá má hvernig gosbeltið nær þvert yfir landið og hvernig hreyfingar flekanna séu.

