
Grænlendingar sögðu sig úr Evrópusambandinu, og eru lausir við EES-áþjánina, eina þjóðin sem hefur haft kjark til þess þar til er Bretar bættust nýlega við. Grænlendingar sömdu sjálfir, eins og sjálfstæðar þjóðir gera, við Bandaríkin um Thuleherstöðina árið 2020. https://www.visir.is/g/20202031773d/graenlendingar-somdu-um-thule-herstodina-an-undirskriftar-dana
Þeir hafa ábyrga leiðtoga, Grænlendinga, sem okkar undirlægjur hér heima ættu að taka sér til fyrirmyndar. Þeir hafa lengi haft gott samband við Bandaríkin og geta vel sjálfir séð um sín mál og samið við Bandaríkin án þess að Evrópusambandsvaldafíklar séu að slettirekast. https://www.mbl.is/frettir/erlent/2026/01/20/myndskeid_fagnad_sem_thjodhetju_i_flugstodinni/
Að senda inn hermenn frá Evrópu er vanvirðing við sjálfstæði Grænlands og aumkunarvert fálm aflóa stórvelda sem getur spillt fyrir Grænlendingum. Málefni Grænlands eru ekki málefni Evrópu, Vesturheimsþjóðin Grænlendingar hafa bæði kjark og vilja til þess að vera sjálfstæðir og geta sjálfir samið við aðrar þjóðir. Þeir hafa m.a. stöðvað kaup Kínverja á herstöð í Grænlandi.
Okkar þekkingarsnauðu forustumenn i utanríkismálum geta valdið stórslysi með því að pissa stöðugt utaní Evrópusambands- pótentátana. Okkar bandamenn í landvörnum eru Bandaríkjamenn, forusta okkar á að tala beint við forustumenn Bandaríkjanna og biðja um að vilji Grænlendinga verði virtur. Sá vilji er ekki sá sami og Danaveldis og húsdbænda þeirra í Evrópusambandinu og Bretaveldi.
