Kínverjar eru orðnir fyrirferðarmiklir á Grænlandi og til marks um það eru kínverjar meðal annars að byggja þrjá flugvelli á Grænlandi og stunda þar einnig námugröft.
Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Guðmundar Fanklín Jónssonar í þættinum Heimsfréttir, fréttir og fréttatengt efni af erlendum vettvangi í dag en hann var viðmælandi Arnþrúðar Karlsdóttur Útvarpsstjóra. Guðmundur segir kínverja horfa til framtíðar í framkvæmdum sínum enda sé um mikið hagsmunamál að ræða
“ þetta nefnilega snýst allt saman um norðurslóðaleiðina og þeir vilja auðvitað bita af kökunni, sá sem ræður yfir siglingaleiðum ræður yfir heiminum„.
Hann segir þó ekki ljóst í hvaða tilgangi flugvellirnir eru reistir
“ þeir eru í vígbúnaðarkapphlaupi og þeir ætla sér geinilega stóra hluti, þeir eru að reisa beina braut bæði í lofti og láði, það á auðvitað að stoppa þá af og ekki hleypa þeim tommu lengra „.
Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.