Hælisleitendur fá viðbótargreiðslur í desember

Samþykkt var á fundi ríkisstjórnarinnar fyrir helgi að greiða umsækjendum um alþjóðlega vernd viðbótargreiðslur í desember líkt og gert hefur verið undanfarin ár. Greiðslurnar sem nema 10 þúsund krónum fyrir hvern fullorðinn einstakling og 5 þúsund krónum fyrir börn koma til viðbótar við fastar framfærslugreiðslur.

Nú eru rúmlega 1.600 umsækjendur um alþjóðlega vernd í þjónustu Vinnumálastofnunar, þar af um 400 börn. Miðað við þann fjölda nemur heildarfjárhæð viðbótargreiðslnanna rúmum 14 milljónum króna en fjármunirnir koma af ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar. Endanleg fjárhæð ræðst af fjölda umsækjenda í þjónustu á greiðsludegi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila