Hinn kunni sagnfræðingur og blaðamaður, Hallur Hallsson, skrifar hér jólapistil um þöggunartilburði valdhafa og ríkisfréttamiðla, sem svífast einskis til að fela sannleikann. Trúr í blaðamannshjarta sínu að standa við loforð alvöru blaðamennsku um að verja hagsmuni þjóðarinnar og segja alltaf sannar fréttir, hvað sem á móti blæs, þá hefur Hallur séð hvernig spilling, peningar og völd hafa grafið undan heilbrigðri fréttamennsku á Íslandi. Hallur er kjarnyrtur að vanda og segir í þessari grein „stétt sinni til syndanna fyrir að elta villuljós og bregðast þjóð sinni, fólkinu í landinu.“
Hallur Hallsson skrifar:
Þúsundir færslna eru ritskoðaðir á facebók. Mikill fjöldi hægra fólks er jaðarsett og varpað í f-fangelsi fyrir að efast um rétttrúnað woke, covid & stríðið í Úkraínu; grímulaust varpað í f-grjót. Í stað þess að koma þessu fólki til varnar, eru fjölmiðlar okkar þátttakendur í hinum ljóta leik Sílíkondals í Kaliforníu; taka þátt í ritskoðun facebók, youtube, google og rest. Ritstjóri Kjarnans er ósáttur við nýfengið málfrelsi Twitters. Ritstjórinn hneykslast á því að Musk hafi lokað ‘mannréttindadeild‘ Twitter. Deildin sú sá um ritskoðun og varpaði hægra fólki í f-fangelsi, þar á meðal 45. forseta Bandaríkjanna. Á orwellsku er ritskoðun mannréttindi, stríð er öryggi sagði Zelinsky í Sameinuðu Bandaríkjaþingi.
Ég er meðal þeirra sem settur er í f-fangelsi; þaggaður, ofsóttur, úthrópaður, texti skyggður, blokkaður, dreifing heft. Ég hef verið kallaður ljótustu nöfnum íslenskrar tungu af vinstir villingum ófærum um gagnrýna hugsun; rökræna umræðu. Vinstri villtir ritskoðaðarar samfélagsmiðla í Sílikondal dæma skoðanir mínar samfélagslega hættulegar eftir klögun íslenskra glóbal-popúlista. Hversu galið er það?
Í fremstu víglínu frétta
Ég hef bráðum hálfrar aldar reynslu í fremstu víglínu frétta. Ég var meðal stofnenda Dagblaðsins 1975 með föður mínum Halli Símonarsyni og Jónasi Kristjánssyni. Ég fór á Moggann 1979 og vann með Styrmi Gunnarssyni og Matthíasi Johannesen, mesta blaðamanni 20. aldar. Ég lærði af þeim bestu. Ég breytti fréttum í sjónvarpi 1986-1994. Ég flutti fréttir af hruni Hafskips og Útvegsbanka, hruni Sambandsins, hruni Sovétsins og klofningi Sjálfstæðisflokksins. Ísland nötraði og Alþingi sjokkeraðist þegar ég sagði frá ákæru á hendur forseta Alþingis. Það gekk ekki lítið á þegar Sverrir heitinn Hermannsson bankastjóri hugðist reka Óla Kr. Sigurðsson heitinn út úr Olís eigin fyrirtæki. Ég var frumkvöðull lögreglu og dómsfrétta í sjónvarpi. Á meðan öðrum var úthlutað fréttaefni á fréttafundum sótti ég fréttir á bak við luktar dyr elítunnar. Spaugstofan sótti óspart innblástur. Ég var fremsti fréttahaukur Sjónvarpsins þegar það var til húsa á Laugavegi; Ómar Ragnarsson auðvitað var & er þjóðardýrgripur, ég flutti þjóðinni skákglímur Jóhanns við Korchnoi og Karpov.
Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins ruddi vinsælasta þingmanni flokksins, Alberti Guðmundssyni úr pólitískum vegi sínum árið 1987; 1. Þingmanni Reykvíkinga. Atlaga Þorsteins var sem bjúgverpill í gæfulausri formennskutíð. Albert kom í sjónvarpssal eftir að hafa verið flæmdur úr ráðherraembætti, skiptiborðið bókstaflega sprakk og flautur þeyttar þegar örtröð myndaðist fyrir utan. Við Ingvi Hrafn vorum sakaðir um að kljúfa Sjálfstæðisflokkinn. Við þögguðum ekki fréttir. Eftir að Sjálfstæðisflokkur Þorsteins rak Ingva Hrafn var tekið til að bíta í hæla mína. Ég tók boði Páls Magnússonar að færa mig á Stöð 2. Þar hélt ég áfram að segja frá atburðum á bak við luktar dyr. Ég var með fréttir um brennivín elítunnar. Jón Baldvin sló til mín í beinni útsendingu og krafðist með Steingrími Hermannssyni að við Palli yrðum reknir í skiptum fyrir 500 milljóna ríkislán til Stöðvar 2. Metinn á 500 millur! Á bak við þessar luktu dyr!
Váfugl í Westminster
Það kom ekki í veg fyrir að ég færi með Jóni Baldvin í fræðgarför hans til Eystrasaltslandanna í ársbyrjun 1991; Rauði herinn var við borgarhlið Vilnius, Riga og Tallinn þegar Jón Baldvin bauð þeim byrginn. Auðvitað erfði hvorugur í garð hins. Ég beitti mér fyrir því að Ingvi Hrafn yrði ráðinn á Stöð 2. Ég hætti eftir að Ingvi vinur minn“left the building“. Sjónvarpið var tröllum gefið þegar til varð ohf. RÚV sem ropi úr iðrum. Ég skrifaði Váfugl til varnar fullveldi Íslands. Ensk þýðing Váfugls var gefin út í Westminster, breska þinginu 2012 meðal lávarða og þingmanna sem elska land sitt. Þegar ég fagnaði fullveldi Bretlands 2019 sögðu þeir við mig í Thatcher House: “The Vulture inspired us, you inspired us.“ Kiljan hefur ekki enn frétt af Váfuglinum, Silfur Egils ekki af Halli Hallssyni.
Þaggaður
Eftir að ég tók afstöðu gegn Orkupakka 3 tók minn gamli vinur að snúast gegn mér og formæla í sand og ösku. Ég er útilokaður og þaggaður á ÍNNlíkt og þaggaður á Stöð 2 eftir að Jón Ásgeir breytti fréttastofunni í pólitíska ormagryfju; þaggaður á RÚV í rúman aldarfjórðung. Nú stend ég einn og segi stétt minni til syndanna fyrir að elta villuljós og bregðast þjóð sinni, fólkinu í landinu. Þegar RÚV fagnaði 50 ára afmæli Sjónvarpsins 2016 með stór-veislu var ég strokaður út eins og þeir sem féllu í ónáð í Sovétinu voru strokaðir út úr myndum flokksbroddanna á Kremlarmúrum. Ríkismiðillinn RÚV þjónar óseðjandi ríkisvaldi í bandalagi við ofsaríka davósa; lyfjarisa, vopnasala og búrókrata. RÚV hylmir yfir barnaníð, mansal og glæpi. Hversu galið er það?
Ég mótmæli
Ég andæfi ríkislygi; einni ríkisskoðun að hætti Marteins Mosdal; pólitískri ritskoðun, pólitískum ofsóknum, pólitískum ákærum, pólitískum réttarhöldum, pólitískri lögreglu, covid-lygi, vestrænum glóbalizma sem birtist í Endalausum styrjöldum Nato, Ameríku og Evrópu. Íhugið vandlega styrjaldir þeirra: Balkanskagi fyrir 30 árum, Serbía, Afganistan, Írak, Lýbía, Sýrland, Súdan, Sómalía og nú Úkraína. Tólf milljónir fallnar varlega áætlað, tugir milljónir á flótta. Julian Assange sá í gegn um stríðsleiki amerískra stríðsherra Clinton Bush Obama og Biden löngu á undan okkur hinum … fylgið peningaslóðinni sagði Assange fyrir áratug.
Ísland er land mitt því aldrei ég gleymi, Jesús leiðtogi minn.
Hallur Hallsson