
Heilbrigðisráðuneytið og Heilbrigðisstofnun Suðurlands segja rangt að 20 hjúkrunarrýmum á Selfossi verði einfaldlega lokað án þess að önnur úrræði komi í staðinn. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem gefin var út í kjölfar fréttaumfjöllunar RÚV um fyrirhugaðar breytingar á hjúkrunardeildunum Fossheimum og Ljósheimum.
Samkvæmt stofnuninni er gert ráð fyrir að framkvæmdir við endurbætur og viðbyggingu húsnæðis Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi hefjist um mitt næsta ár. Þá verður hjúkrunardeildinni Ljósheimum, þar sem 20 hjúkrunarrými eru nú starfrækt, lokað og starfsemi heilsugæslunnar flutt í húsnæðið.
Engar breytingar eru hins vegar fyrirhugaðar á rekstri Fossheima.
Íbúum boðin önnur hjúkrunarrými
Þegar nær dregur framkvæmdunum verður hætt að taka inn nýja íbúa á Ljósheima eftir því sem rými losna. Þegar deildinni verður lokað fá þeir íbúar sem þar búa boð um flutning á önnur hjúkrunarheimili.
Þar koma meðal annars til greina Fossheimar á Selfossi, Móberg og Ás í Hveragerði, auk annarra hjúkrunarheimila í samráði við íbúana sjálfa og aðstandendur þeirra.
Stjórnendur HSU leggja áherslu á að undirbúningur verði vandaður og að sem minnst rask verði á högum íbúa. Þá segir í yfirlýsingunni að enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum eða fluttur langt frá heimabyggð sinni.
Hjúkrunarrýmum á Suðurlandi fjölgar
Yfirvöld benda jafnframt á að heildarfjöldi hjúkrunarrýma á Suðurlandi muni aukast þrátt fyrir lokun Ljósheima. Um mitt næsta ár er áformað að opna nýtt hjúkrunarheimili Áss í Hveragerði þar sem 26 ný hjúkrunarrými bætast við.
Einnig er bent á að Landspítali hafi fram til skamms tíma haft forgang að 40 af 60 hjúkrunarrýmum á Móbergi vegna skorts á hjúkrunarrýmum á höfuðborgarsvæðinu. Sá forgangur sé nú fallinn niður eftir opnun nýrra hjúkrunarrýma í Urðarhvarfi og frekari uppbyggingu á höfuðborgarsvæðinu.
Að mati Heilbrigðisstofnunar Suðurlands mun það leiða til þess að hjúkrunarrými á Móbergi nýtist í auknum mæli íbúum Suðurlands.
