Halda ráðstefnu um þjóðhagslegt mikilvægi ferðaþjónustunnar

Menningar- og viðskiptaráðuneytið í samstarfi við Ferðamálastofu og Samtök ferðaþjónustunnar standa fyrir ráðstefnu um þjóðhagslegt mikilvægi ferðaþjónustunnar miðvikudaginn 22. mars kl. 13:00-16:00 í Kaldalóni, Hörpu. 

Lilja Dögg Alfreðsdóttir ferðamálaráðherra flytur opnunarávarp. Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri, Jane Stacey yfirmaður ferðamála hjá OECD og Grímur Sæmundsen forstjóri Bláa lónsins verða með framsöguerindi. Samtök ferðaþjónustunnar kynna nýtt mælaborð sem sýnir áhrif ferðaþjónustu á nærsamfélög um allt land.

Dagskrá ráðstefnunnar má sjá hér fyrir neðan en fundarstjóri er Nadine Guðrún Yaghi, samskiptastjóri Play.

13:05 Ávarp
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, ferðamálaráðherra

13:20 Gullnáma eða fátækragildra?
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri

13:4Trends in Tourism – Value of the Tourism Industry
Jane StaceyHead of Tourism Unit at OECD

14:05 Slípum demantinn og hönnum okkar framtíð
Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa lónsins

14:20 Kaffihlé

14:40 Áhrif ferðaþjónustu á nærsamfélög um land allt
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF

15:00 Pallborðsumræður – Verðmætin í ferðaþjónustunni
Stjórnandi: Ásta Kristín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans

  • Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka 
  • Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður SAF 
  • Arnar Már Ólafsson, ferðamálastjóri 
  • Svanbjörn Thoroddsen, sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG
  • Sylvía Kristín Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustu- og markaðssviðs Icelandair

Fyrir þá sem hafa áhuga á að sitja ráðstefnuna geta skráð sig með því að smella hér

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila