Halldór Oddsson ráðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar

Halldór Oddsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður ríkisstjórnarinnar. Hann leysir af Önnu Rut Kristjánsdóttur sem er í tímabundnu leyfi.

Halldór lauk meistaraprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands 2009. Hann hefur starfað hjá Alþýðusambandi Íslands undanfarin 13 ár, þar af sem sviðsstjóri lögfræði- og vinnumarkaðssviðs frá árinu 2023. Auk þess hefur Halldór sinnt stundakennslu á háskólastigi á sviði vinnuréttar.

Halldór hefur þegar hafið störf en helstu verkefni hans snúa að almennri samhæfingu varðandi þingmál ríkisstjórnarinnar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila