
Undirbúningur fyrir hátíðarhöld vegna 1100 ára afmælis Alþingis árið 2030 er nú formlega kominn af stað. Í dag, 1. desember, opnar opin hugmyndasöfnun þar sem almenningi, félagasamtökum, stofnunum og fyrirtækjum gefst kostur á að leggja fram tillögur að verkefnum og viðburðum sem gætu orðið hluti af dagskrá afmælisársins. Skilafrestur hugmynda er til 16. janúar 2026.
Markmiðið að fá fram fjölbreytt sjónarhorn
Markmiðið með hugmyndasöfnuninni er að fá fram fjölbreytt sjónarhorn á hvernig megi fagna þessum tímamótum sem teljast til merkustu áfanga íslenskrar stjórnskipanarsögu. Lögð er áhersla á að hugmyndir geti verið af öllum toga, allt frá menningar- og listviðburðum til fræðsluverkefna, hönnunar, miðlunar efnis eða nýstárlegra samfélagsverkefna sem endurspegla sögu og mikilvægi Alþingis.
Mögulega leitað samstarfs um áframhaldandi verkefni
Þátttaka í hugmyndasöfnuninni bindur ekki neinn til frekari verkefna, en áréttað er að mögulega verður leitað til höfunda áhugaverðra eða framúrskarandi tillagna við áframhaldandi mótun verkefna afmælisársins.
Áhugasamir hvattir til að leggja fram hugmyndir
Hvetur skipulagningarteymið alla áhugasama til að leggja fram hugmyndir sem geta orðið hluti af sameiginlegri framtíðarsýn um hvernig best sé að halda upp á eitt elsta þing í heimi og þýðingu þess fyrir íslenskt samfélag fyrr og nú.
Smelltu hér til þess að senda hugmynd
