Bandaríski meinafræðingurinn Ryan Cole varar nú við hröðun krabbameins í fólki, ekki síst hjá ungu fólki og að hann hafi greint eitrað gaddaprótein „inni í sérhverri krabbameinsfrumu.“ Hann segir það í viðtali við Ask Dr. Drew.
Á síðasta ári fullyrti sænskur yfirlæknir í Kalmar að hið svokallaða Covid-bóluefni geti valdið árásargjörnu krabbameini. Hún hélt fyrirlestra um málið. Sænska Læknablaðið skrifar um málið:
„Í myndskeiðunum vekur hún sterkan grun um að covid bóluefnið valdi ofurkrabbameini.“
Bóluefnið lamar mótstöðu mannslíkamans gegn krabbameini
Jafnvel í öðrum löndum hafa sérfræðilæknar varað við því, að sprauturnar valdi krabbameini. Að sögn bandaríska sérfræðingsins Ryan Cole er það vegna þess, að bóluefnið lamar þann hluta hjá frumum, sem er lykillinn að því að halda krabbameini í skefjum.
Í nýju viðtali segir Ryan Cole að hann hafi fundið gaddaprótein, hið eitraða prótein sem bæði kórónaveiran og bóluefnið mynda, inni í krabbameinsfrumum. Auk þess er varað við því, að ungt fólk fái einhverra hluta vegna krabbamein núna sem aldrei fyrr. Cole skýrir málið með mynd (sjá efst á síðunni):
„Allt þetta bláa eru krabbameinsfrumur. Hvað er inni í hverri krabbameinsfrumu? Gaddaprótein. Sérhver illkynja B fruma inniheldur gaddapróteinið. Þetta vekur spurninguna: Hvers vegna greina samstarfsmenn mínir þetta ekki hjá ungu fólki eða þeim, sem skyndilega fá krabbamein?“
Gögn eru falin og læknar fá ekki að setja fram spurningar
„Þegar ég ferðast, held fyrirlestra og sinni kennslu, þá hitti ég ótal lækna sem segjast vera með sjúklinga sem hafa verið í sjúkdómshléi (vegna minna krabbameins) í fimm til tíu ár en eru núna á 4. stigi krabbameins (alvarlegasta stigið). Þeir voru frjálsir. En skyndilega er krabbameinið komið aftur.“
Á sama tíma eru gögn falin og læknar mega ekki einu sinni spyrja spurninga um hvað er að gerast.
„Af hverju getum við ekki bara haft gagnsæi og fengið öll gögn? Ég hef ekkert að fela. Ég hef ekki öll svörin. En ég spyr margra spurninga. Ég sé mynstur. Ég spyr samstarfsmenn mína. Af hverju gera samstarfsmenn mínir það ekki? Mannkynið er í húfi. Þetta ástæðan fyrir því, að við urðum læknar; að hjálpa fólki.“