
Pete Hegseth stríðmálaráðherra Bandaríkjanna kynnti á blaðamannafundi í dag róttækar breytingar á starfsháttum bandaríska hersins og hvatti í ræðu í herstöðinni í Quantico þá hermenn sem andmæla nýrri stefnu til að láta af störfum. Hann lagði áherslu á að hlutverk hersins væri aðeins að búa sig undir stríð og ná sigri og að tímabili pólitísks rétttrúnaðar og vókstefnu væri lokið.
Segir vókstefnuna hafa grafið undan hernum
Hegseth lýsti því að fjölbreytileikastefna, kynjakvótar og pólitískur rétttrúnaður hefðu á undanförnum árum grafið undan aga og styrk hersins. Hann sagði nýju stefnu sína miða að því að hreinsa burt allt sem hefði valdið sundrungu og truflunum, þar á meðal sérstakar skrifstofur fyrir fjölbreytileika.
Endurreisn strangra líkamlegra og agaðra viðmiða
Meðal lykilbreytinga er að kröfur um baráttuþrek hermanna verða færðar aftur á sama stig og þæri voru ári’ 2015, áður en þær voru mildaðar til að auka þátttöku kvenna. Allir liðsforingjar og hermenn, óháð kyni, þurfa að standast sömu þrekpróf sem verða framkvæmd tvisvar á ári. Reglur um snyrtimennsku verða hertar með banni við síðu hári og skeggi, auk þess sem grunnþjálfun mun verða meira krefjandi með tilliti til meiri aga og líkamlegu álagi.
Harðari þjálfun og minni skrifstofuvinna
Hegseth greindi frá því að herþjálfun muni færast frá skriflegum æfingum yfir í fleiri vettvangsæfingar og skotæfingar. Markmiðið er að skapa aga, úthald og hæfni til átaka fremur en fræðslu í formi rafrænna kynninga.
Vill takmarka kvartanir og styrkja vald yfirmanna
Hann tilkynnti jafnframt breytingar á starfsemi eftirlitsmanna hersins sem miða að því að draga úr því sem hann telur tilefnislausar kvartanir og færa vald aftur til herforingja og undirforingja. Hugtök á borð við „eitruð forysta“ og „einelti“ hafi að hans mati verið notuð til að veikja aga og hampa áhættufælnum yfirmönnum.
Varar við aukinni ógn frá Kína og öðrum ríkjum
Í ræðu sinni undirstrikaði Hegseth að herinn yrði að vera tilbúinn að mæta vaxandi öryggisógnum, einkum frá Kína og öðrum keppinautum Bandaríkjanna, og að endurreisn bardagahugsjónarinnar væri lykillinn að fælingarmætti hersins.
Nýja stefnan frelsar hermenn undan vókinu og pólitískum afskiptum
Hegseth lýsti breytingunum sem frelsun fyrir hermenn undan vókstefnu og pólitískum afskiptum. Hann lagði áherslu á að hermenn væru fyrst og fremst bardagamenn sem bæri að þjálfa og meta út frá styrk, aga og hæfni til að ná árangri á vígvellinum.
