Heilbrigðisþing verður haldið í Hörpu þann 14.nóvember næstkomandi. Að þessu sinni verður þingið með norrænni skírskotun vegna formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni. Fyrirlestrar á ráðstefnunni fara því fram á ensku en yfirskrift hennar er:
“Data and Digitalization: Crafting the Future of Sustainable Healthcare”
Þingið verður helgað stafrænni þróun innan heilbrigðiskerfisins með áherslu á gögn og gervigreind en Norðurlöndin í heild sinni stefna á að vera í fararbroddi þegar að þessu mikilvæga viðfangsefni kemur. Leitast verður við að skýra hvernig fjórða iðnbyltingin innan heilbrigðiskerfisins verður að byggja á góðum grunni gæða heilbrigðisgagna, skilvirks regluverks, trausts og þekkingu. Þannig megi efla heilbrigðiskerfi með tilliti til ákvarðanatöku, samvinnu, vísinda og greiningar í þágu almennings.
Velt verður upp spurningum um hvort slík nálgun sé nauðsynleg til að undirbúa heilbrigðiskerfið og samfélagið undir notkun gervigreindar í þágu fólksins í landinu og hvort stafræn þróun sé grunnur að sjálfbærni heilbrigðiskerfa.
Þingið verður sem fyrr segir haldið í Hörpu þann 14. nóvember og í tilkynningu segir að þar komi fram fyrirlesarar í fremstu röð, bæði innlendir og erlendir sem nánar verði kynntir síðar.