
Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson ræddu í Heimsmálunum um stöðu Grænlands og áform Donald Trumps um að færa eyjuna undir yfirráð Bandaríkjanna. Í umræðunni kom fram að Grænland sé næsta skref í stefnu Bandaríkjanna eftir aðgerðir í Venesúela og að þróunin tengist breyttri heimsskipan þar sem stórveldi skipta á milli sín áhrifasvæðum og lykilsvæðum innan þeirra landfræðilegu stöðu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Bandaríkin telja Grænland ómissandi í öryggismálum
Í þættinum kom fram að Bandaríkin telji Grænland ómissandi þátt í eigin öryggis- og varnarkerfi. Þar kom fram að Danmörk hafi ekki burði til að tryggja öryggi Grænlands til lengri tíma og að Bandaríkin hyggist taka yfir ábyrgð á varnarmálum Grænlands. Þessi þróun var sögð vera hafin og ekki bundin við óljósa framtíðarsýn.
Grænland næsta skref eftir Venesúela
Í umræðunni kom fram að aðgerðir Bandaríkjanna í Venesúela og handtaka Nicolás Maduro tengist beint næstu skrefum í stefnu þeirra. Grænland var nefnt sem næsta svæði sem Bandaríkin hyggist tryggja sér yfirráð yfir og sú þróun tengd við aukna áherslu Bandaríkjanna á vesturhvel jarðar og Norður-Atlantshafi.
Stórveldi skipta á milli sín áhrifasvæðum
Í þættinum kom fram að alþjóðakerfið hafi tekið stakkaskiptum og að stórveldi marki sér í auknum mæli áhrifasvæði með afgerandi hætti. Bandaríkin Rússland og Kína skipta á milli sín svæðum sem þau telja skipta sköpum fyrir öryggi og hagsmuni sína út frá landfræðilegri legu þeirra. Þessi þróun sé tengd við endalok þess skipulags sem mótaðist eftir síðari heimsstyrjöld og upphaf nýrrar heimsskipanar þar sem vald og yfirráð ráða ferðinni.
Norður-Atlantshaf fær aukið vægi
Í þættinum kom fram að Norður-Atlantshaf og norðurslóðir hafi aftur orðið miðpunktur í alþjóðlegri stefnumótun. Breyttar siglingaleiðir, hernaðarlegt mikilvægi svæðisins og aðgangur að auðlindum hafi aukið vægi Grænlands og nærliggjandi svæða í öryggissamhengi stórveldanna. Venezúela, Grænland og Ísland eru inn á sama ameríska flekanum og landfræðilega liggja þau öll á þessu áhrifasvæði.
Ísland í kjörstöðu í breyttu valdajafnvægi
Í umræðunni kom fram að þessi þróun hafi bein áhrif á stöðu Íslands. Landið sé í lykilstöðu milli Grænlands og Evrópu og geti orðið miðpunktur í flutningum, þjónustu og uppbyggingu sem tengist auknum umsvifum Bandaríkjanna á norðurslóðum. Þetta gæti skapað góð viskiptatækifæri fyrir Íslendinga.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
