Heimsmálin: Clooney, Robert De Niro og Jane Fonda í Epstein skjölunum

Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson ræddu í Heimsmálunum um Epstein-skjölin og í þeirri umræðu kom fram að Hollywood-leikararnir George Clooney, Robert De Niro og Jane Fonda kæmu við sögu í skjölunum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Leikararnir gestir á eyju Epsteins

Í umræðunni kom fram að það vekti athygli að leikararnir hefðu oft haft sig mikið í frammi í gagnrýni sinni í gegnum tíðina gagnvart Donald Trump forseta Bandaríkjanna. Það væri einnig athyglistvert að lítið væri rætt opinberlega um tengsl þeirra George Clooney, Robert De Niro og Jane Fonda við Epstein þrátt fyrir að vitað væri að þau hefðu verið vinir barnaníðingsins. Þá kom fram að leikararnir hefðu á einhverjum tímapunkti verið gestir Epsteins á Lolita eyjunni.

Gagnrýni leikaranna hófst þegar Trump var byrjaður á að afhjúpa barnaníðinga og tengslanet þeirra

Fram kom í þættinum að gagnrýni leikaranna gagnvart Trump hafi fyrst komið fram í fyrri forsetatíð Trump eða um það leyti þegar Trump var byrjaður á að afhjúpa tengsl frægra einstaklinga við níðingsskap gagnvart börnum. Rætt var í þættinum hvernig fólki hefði átt að detta í hug að fjöldi frægðarmenna frá Hollywood væru, nauðgarar, barnaníðingar eða eitthvað þaðan af verra. En staðreyndin væri samt sú að allt þetta fólk, George Clooney, Robert De Niro, Jane Fonda og fjölmargir fleiri frægir leikarar hefðu verið góðkunningar Epstein og gestir á eyjunni hans.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila