Heimsmálin: Drónaárás á bústað Pútín markar nýtt stig í úkraínustríðinu

Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson ræddu við Hauk Hauksson fréttamann í Moskvu í þættinum Heimsmálunum um drónaárás sem beindist að bústað rússneska forsetans utan Moskvu á dögunum og grun um að bandarískar leyniþjónustur hafi átt aðkomu að undirbúningi aðgerðarinnar. Í þættinum kom meðal annars fram að árásin gæti markað stigmögnun stríðsins í Úkraínu og aukið hættu á beinum átökum stórvelda. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Drónar skotnir niður við verndað svæði

Haukur greindi frá því að 92 drónum hafi verið skotið að bústað rússneska forsetans á afskekktu svæði utan Moskvu þar sem forsetinn dvelur reglulega. Loftvarnir rússneska hersins skutu drónana niður áður en þeir náðu markmiði sínu og brak þeirra fannst á svæðinu. Um er að ræða bústað sem telst hernaðarlega mikilvægur og er skilgreindur sem strategískt öryggissvæði.

Rússar segja bandarískru leyniþjónustuna hafa haft aðkomu að árásinni

Í umræðunni kom fram að rússnesk stjórnvöld telji árásin ekki hafa verið framkvæmd án aðkomu vestrænna leyniþjónustu. Haukur sagði að í Moskvu væri litið svo á að nákvæm hnit og upplýsingar um ferðir forsetans gætu aðeins hafa komið frá ríkjum með víðtæka njósnagetu. Bandarískar leyniþjónustur væru þar nefndar sérstaklega í tengslum við upplýsingaflæði og tæknilega aðstoð.

Tilræði túlkað sem pólitísk og hernaðarleg yfirlýsing

Haukur lagði áherslu á að árás á bústað þjóðarleiðtoga stórveldis væri túlkuð sem tilræði og pólitísk yfirlýsing fremur en einangruð hernaðaraðgerð. Slík árás færi átökin út fyrir hefðbundinn ramma stríðsreksturs og inn á svið beinnar ógnar við ríkisvald og stjórnkerfi.

Hluti af breyttri hernaðaraðferð

Í viðtalinu var árásin sett í samhengi við breytta notkun dróna í stríðinu í Úkraínu. Haukur sagði drónaárásir nú beinast í auknum mæli að skotmörkum langt frá víglínu og aðgreining milli hernaðarlegra og pólitískra markmiða væri orðin óljósari. Með þessu hefðu átökin færst nær kjarna ríkisvaldsins.

Aukin hætta á víðtækari átökum

Að mati Hauks eykur árás af þessu tagi verulega hættu á stigmögnun. Þegar öryggi þjóðarleiðtoga er sett í hættu geti viðbrögð orðið mun harðari en áður og náð langt út fyrir Úkraínu. Slíkar aðgerðir auki líkur á beinum átökum milli stórvelda sem hingað til hafa stutt stríðið með óbeinum hætti.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila