
Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklin Jónsson ræddu í Heimsmálunum um vændi á Íslandi og erlendis og þá spurningu hvaða hópar kaupi þessa þjónustu. Í viðtalinu kom fram að eftirspurnin sé langt umfram það sem oft hefur verið rætt í opinberri umræðu og að kaupendahópurinn sé að stærstum hluta úr efnameiri lögum samfélagsins. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Efnameiri hópar standa að baki eftirspurninni
Fram kom að þeir sem kaupa vændi á Íslandi séu að langmestu leyti einstaklingar sem tilheyra efnameiri stéttum samfélagsins. Þetta séu menn sem hafa fjárhagslega burði til að greiða háar fjárhæðir, hafa aðgang að lokuðum rýmum og geti hagað viðskiptunum á þann hátt að þau komist sjaldan í augsýn almennings. Bent var á að um sé að ræða fólk með stöðu, tekjur og félagslegt svigrúm til að kaupa þjónustu sem er bæði dýr og leynileg. Kaupendur tilheyri ekki hópum sem glími við félagslega erfiðleika heldur menn sem hafi „aðstöðu, tengsl og bolmagn“ til að nýta sér slíka þjónustu.
Erlendir einstaklingar í meirihluta þeirra sem starfa í vændi
Í umfjölluninni kom fram að þeir sem stunda vændi hér á landi séu að mestu erlendir einstaklingar sem dvelji á Íslandi í stuttan tíma. Dvölin standi oft í tvær til þrjár vikur, jafnvel nokkra mánuði, áður en þeir færi sig til annara landa. Þessi mikli hreyfanleiki geri eftirlit erfiðara og minnki líkur á að mál komist til kasta yfirvalda. Þá sé ljóst að markaðurinn sé til staðar vegna þess að til sé hópur kaupenda sem greiði hátt verð.
Umræðan beinist oft að röngum hópi
Í þættinum var bent á að opinber umræða á Íslandi hafi lengi snúist nær eingöngu um þá sem starfa í vændi, en mun sjaldnar um þá sem kaupa þjónustuna. Þessu var lýst sem augljósu misræmi þar sem „kaupendurnir séu drifkrafturinn“ í starfseminni og án þeirra yrði enginn slíkur markaður til staðar.
Samfélagsleg áskorun sem krefst víðtækari skoðunar
Áréttað var að vændi væri ekki einangrað vandamál heldur birtingarmynd í samfélagi þar sem ákveðnir hópar nýta sér aðstöðu sína, fjármagn og vald. Mikilvægt væri að opin umræða færi fram um bæði framboð og eftirspurn, þar sem eftirspurnin væri meginástæðan fyrir því að markaðurinn héldi áfram að þróast. Tekið var fram að án þess að beina sjónum að kaupendum yrði erfitt að skilja umfang starfseminnar eða meta hvaða aðgerðir gætu raunverulega skilað árangri. Sviðaða sögu megi segja erlendis frá þar sem vændi er til staðar og væri sumstaðar viðurkennd sem atvinnugrein.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
