
Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson ræddu í Heimsmálunum í dag um dauða Jeffrey Epstein og þá frásögn sem hann segir koma fram í Epstein-skjölunum um vitnisburð fangavarðar sem starfaði við fangelsið í New York. Í umræðunni kom fram að þessi vitnisburður hafi orðið kveikja að spurningum um hvort Epstein gæti hafa verið á lífi eftir að andlát hans var tilkynnt opinberlega og að ný gögn hefðu endurvakið vangaveltur um atburðarásina sumarið 2019. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Vitnisburður fangavarðar í skjölunum
Guðmundur sagði að í skjölunum kæmi fram frásögn manns sem starfað hefði sem fangavörður í fangelsinu þar sem Jeffrey Epstein var í haldi. Samkvæmt þeirri lýsingu hafi viðkomandi talið sig hafa séð Epstein fluttan út úr fangelsinu í ómerktri bifreið kvöldið áður en dauði hans var opinberlega tilkynntur. Hann sagði að þessi frásögn væri skráð í gögnum sem nú hefðu verið birt og að hún hefði orðið að miðpunkti umræðunnar um mögulegan flutning hans úr haldi og að sá möguleiki væri fyrir hendi að Epstein sé á lífi.
Frásagnir um flutning og óvissa um tímalínu
Í framhaldi vísaði Guðmunudur til þess að fleiri tilvísanir í skjölunum tengdust mögulegum flutningi Epsteins úr fangelsi skömmu áður en dauði hans var tilkynntur. Þessar tilvísanir hefðu að hans mati skapað óvissu um nákvæma tímaröð atburða og orðið til þess að sumir teldu að ekki hefðu allar upplýsingar komið fram á sama tíma. Opinber niðurstaða yfirvalda væri þó enn sú að Epstein hefði svipt sig lífi í ágúst 2019.
Engar ákærur þrátt fyrir nafnbirtingar
Guðmundur benti jafnframt á þá staðreynd að þrátt fyrir að nöfn fjölda einstaklinga kæmu fyrir í Epstein-skjölunum hefði enginn þeirra sem þar væru nafngreindir verið ákærður á grundvelli þeirra gagna einna sér. Hann sagði að þetta vekti upp spurningar um hvort ákærur kynnu að koma fram síðar. Að hans mati væri ekki útilokað að síðar meir gæti málið þróast með þeim hætti að einhverjir þyrftu að svara til saka fyrir dómi.
Hugsanlegur vitnisburður Epstein og Maxwell
Í sama samhengi nefndi Guðmundur Franklín þá hugmynd sem heyrst hefði í umræðunni að ef málin þróuðust frekar gæti komið til þess að Jeffrey Epstein, ef hann væri á lífi, og Ghislaine Maxwell bæru vitni fyrir dómi um tengslanetið og þau gögn sem nú væru til umfjöllunar. Hann lagði þó áherslu á að slíkar hugmyndir væru á þessu stigi vangaveltur fremur en staðfestar upplýsingar en að þær sýndu hversu mikil óvissa ríkti enn í kringum málið.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan
