Heimsmálin: Friðaráætlun Trump þrýstir á Hamas að samþykkja frið

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Franklín Jónsson viðskiptafræðing í Heimsmálunum um nýjan samning Trump Bandaríkjaforseta í friðarviðræðum vegna stríðsins á Gaza sem Netanyahu forsætisráðherra Ísraels hafi samþykkt á fundi í Hvíta Húsinu í gær. Guðmundur sagði að friðaráætlun Trump ásamt skýrum stuðningi Evrópuríkja, Arabaríkja og Múslimaríkja við tillögur Trump, hefði aukið þrýsting á Hamas að ljúka samkomulagi á grundvelli áætlunarinnar sem inniheldur 21 punta sem þarf að uppfylla. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Netanyahu látinn biðja Katar afsökunar

Í þættium kom fram að að Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, hefði á fundi hans og Trump hafi verið látinn hringja í fulltrúa Katar og biðjast afsökunar á loftárásum Ísrael á ríkið. Guðmundur taldi þetta merki um að Ísrael vildi liðka fyrir samkomulagi og tryggja þátttöku Katar í framkvæmd friðarferlisins.

Evrópusambandið styður áætlunina

Þá kom fram í þættinum að Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins hefði lýst því yfir að tillögur Trumps væru eina raunhæfa leiðin til að binda endi á átökin. Guðmundur sagði þetta auka þrýsting á báða samningsaðila að samþykkja áætlunina.

Tony Blair vill lykilhlutverk

Þá kom fram í þættinum að verið væri að skipa sérstaka framkvæmdanefnd undir stjórn Trump til að framfylgja friðarsamningnum og að Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, hefði lýst yfir áhuga á að taka sæti í nefndinni.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila