
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Jón Gerald Sullenberger sem er búsettur í Flórída Í Bandaríkjunum, í Heimsmálunum um stöðu Grænlands í alþjóðamálum, uppbyggingu innviða og viðbrögð Norðurlanda gagnvart Donald Trump. Jón Gerald sagði að Grænland væri orðið miðpunktur í samkeppni stórvelda þar sem hernaðarlegir, tæknilegir og efnahagslegir hagsmunir skarist. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Grænland lykilsvæði í varnarkerfum Vesturlanda
Jón sagði að landfræðileg staðsetning Grænlands, geri það að lykilsvæði fyrir eldflaugavarnir og hernaðarlegt eftirlit á norðurhveli jarðar. Hann sagði að svæðið liggi á mikilvægu leiðakerfi milli Bandaríkjanna, Evrópu og Rússlands og gegni þar lykilhlutverki í varnarkerfum Vesturlanda. Hann sagði að áhugi Bandaríkjanna á svæðinu tengdist þessum þáttum og að uppbygging hernaðarlegra innviða þar hefði verið viðvarandi í áratugi.
Átök um flugvallaruppbyggingu árið 2017
Í þættinum rifjaði Jón upp að árið 2017 hafi Grænlendingar ætlað að ráðast í byggingu nýs flugvallar með aðkomu kínverskra aðila. Hann sagði að danska ríkið hafi ekki viljað taka þátt í verkefninu og það hafi leitt til þess að bandarísk stjórnvöld gripu inn í til að koma í veg fyrir að Kína næði fótfestu á svæðinu. Hann sagði að þessi atburðarás sýni skýrt hvernig Grænland sé hluti af stærri valdabaráttu milli stórvelda.
Gagnaver og gervihnattatækni móta framtíð svæðisins
Þá sagði Jón að aukin áhersla á gagnaver og gervihnattatækni, hafi aukið vægi norðurslóða. Hann sagði að kaldara loftslag og staðsetning á norðurhveli geri Grænland sérstaklega hentugt fyrir uppbyggingu gagnavera og móttökustöðva fyrir fjarskipti og gervihnetti. Hann sagði að þróun gervigreindar og aukin þörf fyrir gagnavinnslu kalli á slíka uppbyggingu og að stórveldi horfi í auknum mæli til svæðisins í því samhengi.
Viðbrögð Norðurlanda við Donald Trump
Jón Gerald sagði að viðbrögð Norðurlanda við ummælum Donald Trump um Grænland hafi einkennst af því að einblína á framsetningu málsins fremur en undirliggjandi hagsmuni. Hann sagði að umræðan hafi snúist um orðalag en ekki þá hernaðarlegu og tæknilegu þætti sem ráða mestu um stöðu svæðisins. Hann sagði að mikilvægt væri að meta málið út frá raunverulegum hagsmunum og þróun í alþjóðamálum fremur en pólitískum viðbrögðum.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
