
Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmund Franklín Jónsson ræddu í Heimsmálunum í dag um handtöku Nicolás Maduro og hvernig aðgerðin var sett fram sem afgerandi stefnubreyting Bandaríkjanna gagnvart Venesúela og ríkjum Suður-Ameríku. Í umræðunni kom fram að handtakan sé liður í markvissri aðgerð sem miðar að því að rjúfa ákveðið valdakerfi sem hefur verið við lýði í Venezúela og hefur leitt til fíkniefnahryðjuverka í Bandaríkjunum eins og segir í ákæru á Maduro og eiginkonu hans. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Handtaka framkvæmd án hefðbundinnar hernaðaríhlutunar
Í þættinum kom fram að Bandaríkin hafi ekki ráðist inn í Venesúela með hefðbundnum hernaðaraðgerðum heldur beitt afmarkaðri og leynilegri aðgerð til handtaka Maduro og eiginkonu hans og flytja þau úr landi. Umfangsmeiri innrás hefði verið bæði kostnaðarsöm og áhættusöm og því ekki talin raunhæfur kostur. Í stað þess hafi verið valin leið sem miðaði að því að handtaka Maduro á sem skemmstum tíma og án mikils umstangs.
Valdakerfi Venesúela byggist á ótta og spillingu
Fram kom að stjórnskipan Venesúela hafi í reynd byggst á þröngri valdaklíku sem hafi haldið völdum með stuðningi öryggissveita og tengsla við skipulagða glæpastarfsemi. Í þættinum var bent á að þeir stjórnarhættir hafi gert hefðbundnar leiðir að valdabreytingum ófærar og þannig skapað forsendur fyrir utanaðkomandi íhlutun. Íbúar í milljónatali hafi flúið frá Venezuela til þess að flýja ógnarstjórn og mannréttindabrot stjórnar Maduro.
Skilaboð til annarra ríkja á vesturheimi
Fram kom í þættinum að handtaka Maduro sé ekki einungis bundin við innri málefni Venesúela heldur sendi skýr skilaboð til annarra ríkja í Suður- og Mið-Ameríku. Aðgerðin var sögð marka harðari línu gagnvart stjórnvöldum sem tengjast spillingu, eiturlyfjasmygli og ólöglegri fjármálastarfsemi.
Upphaf nýs áfanga í samskiptum Bandaríkjanna við Suður-Ameríku
Í þættinum var bent á að handtakan sé fyrsta skrefið í stærra ferli. Fram kom að Bandaríkin hyggist með þessu endurheimta pólitísk áhrif sín í Vesturheimi og hafa virkari aðkomu að þróun stjórnmála í ríkjum sem hafi verið undir stjórn ólýðræðislegra valdakerfa.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
