
Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson ræddu í Heimsmálunum í dag um versnandi stöðu stjórnvalda í Venesúela, baráttu Donald Trump við fíkniefnasmyglara þar í landi og vafasöm stafræn kosningakerfi sem tengd hafi verið stjórn landsins og talið hafa verið notað til að svindla í bandarískum kosningum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Staða stjórnvalda í Venesúela veikist
Í þættinum kom fram að stjórnvöld í Venesúela séu að einangrast bæði innan- og utanlands. Donald Trump hafi undanfarna mánuði beitt sér gegn smyglleiðum frá landinu og falið hernum að ráðast gegn bátum sem tengist umfangsmiklum fíkniefnaflutningum. Í þættinum kom fram að aðgerðir Trump hafi leitt til þess að framboð ólöglegra efna til Bandaríkjanna hafi dregist saman og verð á kókaíni hafi hækkað um 45% í Bandaríkjunum en verðhækkun fíkniefna á markaði er sterk vísbending um mun minna framboð fíkniefna frá Venusúela.
Rússland, Kína og Íran skipta sér ekki af aðgerðum Bandaríkjamanna
Fram kom að ríki sem lengi hafa verið helstu bakhjarlar Maduro, þar á meðal Rússland, Kína og Íran, hafi dregið sig í hlé og hafi lýst því yfir að þeir muni ekki skipta sér af aðgerðum Bandaríkjamanna gegn Venesúela og muni ekki heldur íhlutast brjótist út stríð á svæðinu. Þá hafi Maduro sagst ætla bera vitni gegn Biden stjórninni og greina frá því að Biden hafi beðið að Maduro að senda stóra glæpaklíku Treaqa til Bandaríkjanna til að valda upplausnarástandi. Í ljósi þess að landið missti stuðning þessara stórvelda þá gerir það stjórninni í Venesúela erfiðara fyrir að halda völdum á sama tíma og efnahagsástand landsins er viðkvæmt og óstöðugt.
Fyrirtæki í Venesúela þróuðu talningavélar sem notaðar voru til að svindla í kosningum
Í þættinum var fjallað ítarlega um að Maduro hafi einnig viðurkennt tengsl Venesúela við þróun stafrænna kosningakerfa (Smartmatic) og Dominion talningarvéla sem að sögn þar hafi síðar verið notuð í kosningum í Bandaríkjunum. Þar kom fram að fyrirtæki sem þróuðu kerfi í Venesúela hafi átt þátt í hugbúnaði sem tengdur var talningarvélum í bandarískum fylkjum. Í þættinum kom fram að þessi tækni hafi gert kleift að hafa áhrif á niðurstöður kosninga demókrötum til hagsbóta, einkum í ríkjum þar sem úrslit réðust á mjóum mun. Þá kom fram að talningarvélarnar og hugbúnaðurinn sem kæmi frá fyrirtækjum í Venesúela bæru með sér möguleika á stillingum, gagnastraumum og fjartengingum sem nýtanlegar væru til að stýra talningu atkvæða. Í þættinum var sagt að þessi kerfi hefðu verið hluti af stærra neti sem notað hefði verið í kosningum þar sem markmiðið væri að tryggja demókrötum yfirhöndina meðal annars í sveifluríkjunum.
Óljósar horfur fram undan
Í lok umfjöllunarinnar kom fram að þróunin í Venesúela gæti haft áhrif langt út fyrir landamæri ríkisins. Staðan væri bæði eldfim og ófyrirsjáanleg og gæti þróast hratt eftir því hvernig alþjóðlegir aðilar bregðast við breyttri stöðu í Karakas.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
