Heimsmálin: Óútskýrð drónaflug á Norðurlöndum – engin sönnun gegn Rússum

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi í Heimsmálunum við Hauk Hauksson, fréttamann í Moskvu, um þau drónaflug sem vakið hafa athygli á Norðurlöndum og jafnvel á Íslandi og talið sé að Rússar eigi hlut að máli. Haukur segir að engar sannanir liggi fyrir um aðkomu Rússa að málunum og kallar eftir vönduðum rannsóknum og beinum samskiptum við rússnesk stjórnvöld. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Engin gögn sem sanna aðkomu Rússa

Haukur benti á að fjölmiðlar og stjórnvöld á Vesturlöndum hafi fullyrt um rússneska aðild að drónafluginu án þess að leggja fram gögn sem staðfesti slíkt. Hann sagði að hingað til hafi hvorki fundist myndir né tæknileg sönnunargögn sem sýni að drónarnir tengist rússneska ríkinu á nokkurn hátt.

Hver sem er getur keypt dróna og flogið þeim

Fram kom að drónar séu auðfengnir í verslunum og á netinu og geti jafnvel ungir einstaklingar keypt og stjórnað þeim. Þá séu ákveðin tæknileg öryggissvæði í kringum flugvelli og hernaðarmannvirki sem hindri drónaflug og eiga að koma í veg fyrir alvarleg tilvik á borð við drónaflug í lofthelgi Keflavíkurflugvallar.

Kallar eftir diplómatískum samskiptum og rannsóknum

Haukur lagði áherslu á að mikilvægt væri að íslensk stjórnvöld hefðu beint samband við rússnesk yfirvöld og leituðu skýringa hjá utanríkisráðuneyti þeirra. Hann sagði að ásakanir sem varða öryggismál ríkja verði að byggja á staðfestum gögnum, ekki sögusögnum.

Varar við einhliða ásökunum og áróðri

Hann gagnrýndi að fjölmiðlar hefðu tekið undir ásakanir án gagnrýninnar skoðunar og varaði við að slíkt gæti aukið spennu milli ríkja og skapað óþarfa tortryggni.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila