
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðmund Franklín Jónsson viðskiptafræðing um umfangsmikinn fund sem bandarísk stjórnvöld héldu í Quantico-herstöðinni í Virginíu undir stjórn Peter Hegseth stríðsmálaráðherra. Kom fram í þættinum að umfang fundarins benti til umtalsverðra breytinga á stefnu Bandaríkjanna í varnarmálum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
900 herforingjar kallaðir saman til fundarins
Á fundinn voru kallaðir saman nær 900 yfirmenn úr öllum deildum bandaríska hersins, þar á meðal einnar til fimm stjörnu hershöfðingjar, yfirmenn landhers, flughers, sjóhers og fleiri deilda. Að sögn Guðmundar er óvenjulegt að svo fjölmennur fundur æðstu herstjórnar sé haldin og ljóst að miklar breytingar væru yfirvofandi í bandaríska hernum.
Draga á úr viðveru bandaríkjahers erlendis
Í þættinum kom fram að fregnir hermi að draga eigi herlið frá fjölmörgum bækistöðvum Bandaríkjahers á erlendri grundu draga úr viðveru bandarískra hermanna í Evrópu og við Kyrrahaf. Sérstaklega var nefnt að herlið í Þýskalandi yrði skorið niður um allt að 20 þúsund manns fyrir jól. Fram kom að þetta væri vísbending um að Trump hyggist auka varnarviðbúnað innan Bandaríkjanna.
Kvennakvóti lagður niður og ný hernaðartækni
Arnþrúður sagði að boðað hefði verið að leggja niður kvennakvóta í hernum og í staðinn leggja áherslu á líkamlega hæfni og hæfileika til starfa óháð kyni. Hingað til hafi konur komist í herinn samkvæmt kynjakvóta en nú verði alfarið horft framhjá því. Þetta væri hluti af nýrri nálgun þar sem tæknibreytingar, einkum þróun drónavopna, hefðu gjörbreytt þörf fyrir hefðbundið landherlið. Drónar og fjarstýrð vopnakerfi hefðu gert hernum kleift að sinna mörgum verkefnum úr fjarlægð og minnkað þörf fyrir mannskap á víglínum.
Mikilvægi fundarins fyrir NATO og bandalagsríki
Fundurinn var einnig sagður hafa beinst að samskiptum við bandalagsríki í NATO og að sú stefna að draga úr viðveru erlendis gæti kallað á breytingar á varnarmálum Evrópu. Slíkt gæti aukið þrýsting á Evrópuríki að byggja upp eigin hernaðargetu til að mæta mögulegum veikleikum ef Bandaríkin draga sig að einhverju leyti til baka.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
