
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Jón Gerald Sullenberger sem er búsettur í Flórída í Bandaríkjunum, í Heimsmálunum um afstöðu íslenskra stjórnvalda til Bandaríkjanna og breytingar á utanríkisstefnu núverandi ríkisstjórnar. Jón Gerald segir að íslensk stjórnvöld hafi markvisst fjarlægst Bandaríkin og beint sjónum sínum að Evrópu þrátt fyrir sterk söguleg tengsl ríkjanna. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Afstaða stjórnvalda gengur gegn hagsmunum Íslands
Jón segir að Bandaríkin hafi gegnt lykilhlutverki í öryggis- og efnahagsmálum Íslands í áratugi. Hann segir að sú staðreynd sé ekki lengur leiðarljós í stefnumótun stjórnvalda og að afstaðan gagnvart Bandaríkjunum hafi breyst á skömmum tíma. Hann bendir á að íslensk stjórnvöld taki í auknum mæli þátt í samstarfi við Evrópuríki á sama tíma og tengsl við Bandaríkin veikjast.
Gagnrýnir opinbera umræðu og fjölmiðla
Í viðtalinu sagði Jón að neikvæð umfjöllun um Bandaríkin hafi fest sig í sessi í íslenskum fjölmiðlum. Hann segir að sú umræða hafi verið viðvarandi um árabil og mótað viðhorf almennings til bandarískra stjórnvalda. Hann segir að þessi þróun hafi einnig náð inn í stjórnmálin þar sem ráðherrar hafi tekið þátt í slíkri umræðu og þannig styrkt þessa afstöðu gegn bandarísku þjóðinni.
Viðhorfið hefur áhrif á stefnumótun
Jón segir að þessi viðhorfsbreyting, hafi bein áhrif á ákvarðanir stjórnvalda í utanríkismálum. Hann segir að Ísland sé að færa sig nær Evrópusambandinu á sama tíma og dregið sé úr áherslu á samstarf við Bandaríkin. Hann bendir á að efnahagsleg þróun í Bandaríkjunum sé sterkari en víða í Evrópu og að það eigi að hafa áhrif á forgangsröðun Íslands í alþjóðasamstarfi.
Ísland á að tryggja áframhaldandi stuðning Bandaríkjanna
Jón Gerald segir að íslensk stjórnvöld þurfi að skýra betur hvaða hagsmuni þau ætli að verja í utanríkismálum. Hann segir að ljóst sé að stefna stjórnvalda hafi breyst og að sú breyting kalli á skýr svör um markmið og afleiðingar. Hann segir að Ísland eigi að byggja á þeim tengslum sem hafi reynst landinu best og tryggi stöðu þess til framtíðar. Það sé engin spurning í hans huga að Ísland eigi að tryggja áframhaldandi stuðning Bandaríkjanna við landið.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
