Heimsmálin: Trump undirbýr frekari aðgerðir gegn kosningasvindli

Arnþrúður Karlsdóttir og Guðmundur Franklín Jónsson ræddu í Heimsmálunum um kosningamál í Bandaríkjunum og þær aðgerðir sem Donald Trump og stuðningsmenn hans hafa beint að því sem þeir telja vera veikleika í bandaríska kosningakerfinu. Guðmundur sagði að Trump hefði gert baráttuna gegn kosningasvindli að einu af sínum helstu verkefnum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Kalifornía notuð sem dæmi um stærra vandamál

Í þættinum var fjallað um framkæmd kosninganna í Kaliforníu þar sem enn var verið að telja atkvæði þegar þátturinn var tekinn upp. Arnþrúður vakti athygli á því hversu langan tíma talningin tæki og spurði hvort slíkt væri eðlilegt í einu stærsta fylki Bandaríkjanna.?

Guðmundur sagði að kosningarnar í Kaliforníu væru fyrst og fremst dæmi um það sem hann teldi vera víðtækari veikleika í bandaríska kosningakerfinu. Hann gagnrýndi póstkosningar, kjörskrár og skort á kröfum um auðkenningu kjósenda og sagði að slíkt hefði um árabil verið umdeilt meðal repúblikana. Að hans mati snerist umræðan ekki eingöngu að Kaliforníu heldur um framkvæmd kosninga um öll Bandaríkin.

Trump safnar sönnunargögnum

Guðmundur sagði að Trump og samstarfsmenn hans væru nú að leggja áherslu á að afla gagna um meint kosningasvik í stað þess að byggja eingöngu á almennum ásökunum. Stofnanir undir stjórn Trump fylgdust með ýmsum þáttum kosningaframkvæmdarinnar og markmiðið væri að sýna fram á misfellur sem gætu síðar orðið grundvöllur breytinga á kosningalögum.

Deilur um auðkenningu kjósenda

Arnþrúður nefndi að ýmis mál tengd kosningum og innflytjendamálum hefðu ratað fyrir dómstóla og spurði hvort slíkt gæti tafið áform Trump.

Guðmundur sagði að lagalegar deilur væru orðnar fastur þáttur bandarískra stjórnmála en taldi engu að síður að stuðningsmenn Trump myndu halda áfram að þrýsta á breytingar. Hann nefndi sérstaklega frumvörp sem eiga að herða kröfur um auðkenningu kjósenda og tryggja að aðeins þeir sem hafa kosningarétt geti tekið þátt í kosningum. Baráttan um auðkenningu kjósenda, póstkosningar og kjörskrár verði líklega eitt stærsta pólitíska deilumál Bandaríkjanna á næstu árum.

Horfir til næstu kosninga

Guðmundur taldi að kosningarnar í Kaliforníu gætu reynst mikilvægar vegna þess að þær veittu Trump og stuðningsmönnum hans tækifæri til að prófa nýja nálgun í umræðunni um kosningasvindl. Markmiðið væri að undirbyggja málflutning sinn með gögnum og nota niðurstöðurnar sem rök fyrir breytingum á kosningakerfinu áður en næstu stóru kosningar fara fram. Hann sagði að Trump liti á þetta sem eitt af mikilvægustu verkefnum sínum og að niðurstaðan gæti haft áhrif langt út fyrir Kaliforníu og jafnvel mótað umræðuna um bandarískt lýðræði á komandi árum.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila