Heimsyfirráðaáætlunin er ekkert annað en landráð

Áætlunin Agenda 21 heitir þessu nafni ekki af tilviljun einni því með nafninu er verið að blekka almenning sem áttar sig ekki á að um heimsyfirráðaáætlun sé að ræða sem sé ekkert annað en landráð. Þetta var meðal þess sem fram kom í Menntaspjallinu í dag en þar voru gestir Valgerðar Snæland Jónsdóttur þeir Leifur Árnason flustjóri og Logi Kjartansson lögfræðingur.

Yfirráð yfir grunnstoðum ríkis er landráð

Logi segir að það sé lykilatriði þegar taka á yfirráð yfir grunnstoðum í ríkinu þá verði að kalla það sínu rétta heiti sem er landráð. Þetta eigi ekkert skylt við lýðræði heldur teljist frekar vera andlýðræðislegt og andfélagslegt segir Logi.

Logi segir að það sé kominn tími á að almenningur vakni til vitundar um málið.
Valgerður bendir á hvernig þessi áætlun hafi náð að festa klóm sínum inn í allt samfélagið, til að mynda skólana, háskólasamfélagið, heilbrigðiskerfið og í raun inn í öll kerfi í landinu sem skipta máli.

Hlusta má á nánari umfjöllun í spilaranum hér að neðan

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila