Herða reglur um notkun björgunartækja Landhelgisgæslunnar

Dómsmálaráðherra hefur sett nýja reglugerð um nýtingu loftfara og skipa Landhelgisgæslunnar í verkefnum sem falla utan lögbundinna og samningsbundinna verkefna stofnunarinnar. Markmiðið er að tryggja gagnsæi, ábyrgð og skýra stjórnsýslulega umgjörð um slíka notkun.

Notkun bundin skýrum skilyrðum

Reglugerðin heimilar nýtingu loftfara og skipa í tengslum við opinber verkefni stjórnvalda, þar á meðal vegna óvæntra atburða sem krefjast hraðra flutninga, formlegra athafna þar sem önnur úrræði standa ekki til boða, alþjóðasamstarfs og fræðslu- og kynningarstarfs. Einnig er gert ráð fyrir notkun í forvarnar- og góðgerðarverkefnum.

Áhersla er lögð á að hagkvæmni sé tryggð og að slík verkefni hafi ekki áhrif á viðbragðsgetu Landhelgisgæslunnar við lögbundnum verkefnum.

Ábyrgð og eftirlit skilgreint

Landhelgisgæslan ber ábyrgð á því að meta hverju sinni hvort skilyrði reglugerðarinnar séu uppfyllt. Stofnunin skal halda skrá yfir allar samþykktar beiðnir og upplýsa dómsmálaráðuneytið um ferðir, tilgang þeirra og áhrif á starfsemi.

Með þessu er leitast við að auka rekjanleika og tryggja að ákvarðanir um nýtingu fari fram á skýrum og málefnalegum forsendum.

Einkanotkun alfarið óheimil

Í reglugerðinni er sérstaklega kveðið á um að öll einkanotkun á loftförum og skipum Landhelgisgæslunnar séu óheimil. Með því er dregin skýr lína milli opinberra verkefna og annarrar notkunar og komið í veg fyrir misnotkun á björgunartækjum ríkisins.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila