
Hollenska þingkonan Eva Vlaardingerbroek gagnrýndi harðlega Ursulu von der Leyen, framkvæmdastjóra Evrópusambandsins á árlegri ráðstefnu CPAC í Ungverjalandi á dögunum og sagði hana stýra ósýnilegu valdakerfi sem hún líkti við djúpríki innan ESB. Í ræðu sem hefur vakið mikla athygli víða í Evrópu lýsti hún sambandinu sem „móderniseruðu einræði“ sem sýni sig út á við sem lýðræði en sé í raun rekið af valdastétt sem almenningur hafi aldrei kosið.
Segir vald ESB byggja á embættismönnum sem enginn hafi kjörið
Vlaardingerbroek sagði að ESB væri stjórnað af embættismönnum sem starfi án lýðræðislegs umboðs og taki ákvarðanir sem snerti hundruð milljóna borgara. Hún sagði að Von der Leyen væri táknmynd þessa valdakerfis og „andlit stjórnsýslu sem almenningur geti hvorki kosið né hafnað“. Sú staða sé að hennar mati grundvallareinkenni djúpríkis innan Evrópusambandsins.
ESB þaggar niður gagnrýni með stimplum og orðalagi
Þá benti hún á að vald ESB birtist ekki með beinum þvingunum, heldur með orðræðustýringu og pólitískum stimplum. Samkvæmt henni sé gagnrýnendum ýtt út fyrir umræðusviðið með því að merkja þá sem öfgamenn eða ógn við lýðræði. Hún sagði að með þessum aðferðum væri valdinu pakkað inn í virðulega frasa sem séu notaðir til að þrýsta á borgara án þess að beita ofbeldi.
Ursula ber ábyrgð á deilumálum um græna stefnu, innflytjendamál og hernaðaruppbyggingu
Vlaardingerbroek sagði að Von der Leyen bæri persónulega ábyrgð á helstu stefnumálum ESB og sagði Græna sáttmálann veikja atvinnulíf, innflytjendastefnu sambandsins valda auknu óöryggi og hernaðaruppbyggingu sambandsins ganga framar grunnþörfum almennings á tímum kreppu og verðbólgu. Hún hafnaði einnig hugmyndum um að Úkraína fengi aðild að ESB og sagði slíka ákvörðun „óvarlega og ósjálfbæra“.
Krefst upplýsinga um samning við Pfizer: segir ESB beita tvöföldu réttarkerfi
Þá beindi hún orðum sínum að milljarðasamningi ESB við lyfjafyrirtækið Pfizer. Vlaardingerbroek spurði hvers vegna smáskilaboð Von der Leyen við forstjóra Pfizer hefðu horfið úr gögnum sambandsins, þrátt fyrir að samningurinn hafi falið í sér gríðarleg fjárútlát. Hún benti á að almenningur sætti sífellt auknu stafrænu eftirliti á meðan „valdamenn geti starfað án gagnsæis og ábyrgðar“.
„Tími ábyrgðar mun koma“
Í lok ræðunnar hét hún því að berjast gegn því sem hún kallaði djúpríkinu sem starfaði innan sambandsins án umboðs og sagði að ESB verði að sæta uppgjöri. “ Við munum krefjast reikningsskila í þessu máli“ sagði hún og bætti við að Evrópa yrði að fara aftur í hendur eigin þjóða. Ursula von der Leyen hefur ekki svarað gagnrýninni opinberlega.
