
Ráðist verður í umfangsmiklar framkvæmdir við Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi þar sem reist verður rúmlega 5.200 fermetra viðbygging og meirihluti eldra húsnæðis tekinn í gagngera endurnýjun og endurskipulagningu. Framkvæmdirnar fara fram í þremur áföngum og miða að því að mæta ört vaxandi þjónustuþörf á Suðurlandi.
Fyrsti áfangi hefst strax
Fyrsti áfangi felst í endurnýjun og stækkun húsnæðis heilsugæslu geðteymis og heimahjúkrunar. Sá hluti verksins er fullfjármagnaður og heimildir liggja fyrir til að hefja framkvæmdir án tafar. Gert er ráð fyrir að honum ljúki um mitt ár 2027.
Núverandi húsnæði stenst ekki nútímakröfur
Eldri hluti byggingarinnar er frá árinu 1981 og nýrri hluti frá 2008. Viðhaldsþörf hefur safnast upp og skipulag uppfyllir ekki lengur kröfur um öryggi og gæði heilbrigðisþjónustu. Vinnuaðstaða starfsfólks er víða þröng og hluti skrifstofustarfa fer fram í gámaeiningum á lóðinni.
Mikil fjölgun íbúa krefst aukinnar þjónustu
Íbúum á Suðurlandi hefur fjölgað hratt og álag aukist samhliða mikilli ferðaþjónustu og vaxandi frístundabyggð. Þörf er talin á að fjölga sjúkrastofum úr 20 í allt að 40 og stækka eða endurskipuleggja húsnæði bráðamóttöku göngudeilda myndgreiningar rannsókna fæðingarþjónustu geðheilbrigðis heilsugæslu heimahjúkrunar og yfirstjórnar. Núverandi húsnæði er um 8.800 fermetrar en heildarþörf er metin um 11.000 fermetrar. Starfsmenn eru um 850 í 604 stöðugildum og gert ráð fyrir allt að 20% fjölgun á næsta áratug.
Framkvæmdir til ársins 2034
Í öðrum áfanga verður reist ný norðurálma fyrir legudeildir bráðamóttöku myndgreiningu og fæðingarþjónustu. Í þriðja áfanga verður austurálma endurnýjuð með göngudeildum skrifstofum mötuneyti og kjallara. Áætlaður heildarkostnaður verkefnisins er á bilinu 8,5 til 13 milljarðar króna og gert ráð fyrir að öllum framkvæmdum geti lokið árið 2034.
