Hugmynd um aukaaðild Kanada að ESB fjölmiðlaleikur

Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson ræddu við Harald Ólafsson, formann Heimssýnar og prófessor í veðurfræði við Háskóla Íslands, í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu, um hugmyndir um aukaaðild Kanada að Evrópusambandinu. Arnþrúður greindi frá fréttum um að Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, hefði boðið Kanada sérstaka aukaaðild en hugmyndinni hefði síðan verið hafnað, meðal annars vegna andstöðu Frakka og Þjóðverja. Haraldur telur að tilgangurinn hafi fyrst og fremst verið að skapa jákvæða fjölmiðlaumfjöllun um Evrópusambandið í kjölfar íslensku þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Aukaaðild Kanada rann út í sandinn

Arnþrúður rifjaði upp að Ursula von der Leyen hefði upp á sitt einsdæmi boðið Kanada, undir forystu Mark Carney, sérstaka aukaaðild að Evrópusambandinu.

Hún benti á að slíkt aðildarform væri ekki til í stjórnskipulagi Evrópusambandsins og hugmyndin hefði mætt andstöðu innan ESB, einkum frá Þýskalandi og Frakklandi. Nú væri komið á daginn að Kanada fengi ekki þá aukaaðild sem áður hafði verið nefnd.

Pétur tók undir að ekkert fyrirkomulag um slíka aukaaðild hefði verið fyrir hendi. Hugmyndin hefði komið fram á sama tíma og Kanada átti í deilum við Bandaríkin um tolla og viðskipti en síðan hefði komið í ljós að önnur Evrópuríki væru ekki tilbúin að styðja hana.

Jákvæðar fréttir áttu að skyggja á niðurstöðuna á Íslandi

Haraldur setti fram þá skýringu að hugmyndin hefði verið kynnt til að draga athygli frá neikvæðum fréttum um Evrópusambandið eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna á Íslandi. Hann taldi Ursulu von der Leyen, hafa viljað skapa jákvæða umræðu um sambandið í nokkra daga og tilkynning um möguleg tengsl Kanada við ESB hefði hentað vel í þeim tilgangi.

Hann sagðist jafnframt gera ráð fyrir að forseti framkvæmdastjórnarinnar hefði vitað að sérstakt fyrirkomulag um aukaaðild væri ekki til staðar og hugmyndin ætti því litla möguleika á að verða að veruleika.

Tilganginum hefði engu að síður verið náð með því að fjölmiðlar tækju fréttinni fagnandi og birtu jákvæða umfjöllun um Evrópusambandið.

Erlendir blaðamenn þekkja illa til stjórnkerfis ESB

Haraldur tengdi umræðuna við reynslu sína af samskiptum við erlenda blaðamenn fyrir íslensku þjóðaratkvæðagreiðsluna. Hann hafði rætt við nokkra tugi blaðamanna frá aðildarríkjum Evrópusambandsins og komist að þeirri niðurstöðu að þekking margra þeirra á stjórnskipan sambandsins væri takmörkuð.

Sumir hefðu jafnvel talið að öll aðildarríki ESB hefðu neitunarvald í öllum málum, þótt ákvarðanatöku innan Evrópusambandsins væri ekki almennt þannig háttað.

Hann sagði þetta sýna hversu auðvelt gæti verið að koma einföldum og jákvæðum skilaboðum á framfæri án þess að fjölmiðlar spyrðu nægilega ítarlegra spurninga um lagalegar og stjórnskipulegar forsendur þeirra.

Að hans mati hefði umfjöllunin um Kanada verið dæmi um slíkt. Í stað þess að kanna hvað aukaaðild fæli í sér hefðu fjölmiðlar tekið hugmyndina upp og skapað þá jákvæðu umræðu sem hann taldi að von der Leyen, hefði sóst eftir.

Ákvarðanir ESB verði að byggjast á gildandi reglum

Arnþrúður vakti máls á því hvað málið segði til um ákvarðanatöku innan Evrópusambandsins og hvort hugmyndir væru stundum settar fram án þess að fyrir lægi hvernig ætti að framkvæma þær. Rifjaði Arnþrúður einnig upp í því sambandi að fullyrðingar hefðu komið fram fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um að Íslendingar gætu hafið viðræður án þess að skuldbinda sig til aðildar.

Arnþrúður beindi einnig athyglinni að umræðunni um bókun 35 við EES-samninginn og mikilvægi þess að stjórnvöld virtu gildandi lög og þær reglur sem samskipti Íslands við Evrópusambandið byggðust á.

Haraldur tók undir mikilvægi þess að virðing fyrir lögum og reglum væri grundvöllur samfélagsins. Hann sagði jafnframt reynsluna af hugmyndinni um aukaaðild Kanada sýna hversu mikilvægt væri að fjölmiðlar kynntu sér valdheimildir og stjórnskipan Evrópusambandsins áður en þeir tækju stórar yfirlýsingar forystumanna þess gildar.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila