Inga Sæland formaður og þingmaður Flokks fólksins lagði fram fyrirspurn til utanríkisráðherra á Alþingi í lok janúar þar sem hún spurði út í umsvif utanríkisþjónustunnar. Inga vildi meðal annars vita hversu mörg sendiráð íslenska ríkið starfrækti, hversu margir sendifulltrúar væru á vegum þeirra sem og starfsmenn og hverjir gengdu hlutverki sendifulltrúa.
Í svarinu kemur meðal annars fram að Ísland er með 27 sendiskrifstofur í 22 ríkjum en á þessum sendiskrifstofum starfa alls 170 manns, þar af 68 útsendir diplómatar og 10 sérfræðingar frá öðrum ráðuneytum.
Sendiherrarnir eru:
- María Erla Marelsdóttir, sendiherra Íslands í Berlín, hóf störf þar árið 2019.
- Kristján Andri Stefánsson, sendiherra Íslands í Brussel, hóf störf þar árið 2020.
- Einar Gunnarsson, sendiherra Íslands í Genf og fastafulltrúi hjá alþjóðastofnunum í Genf, hóf störf þar árið 2022.
- Harald Aspelund, sendiherra Íslands í Helsinki, hóf störf þar árið 2022.
- Þórdís Sigurðardóttir, forstöðumaður sendiráðsins í Kampala, hóf störf þar árið 2020.
- Helga Hauksdóttir, sendiherra Íslands í Kaupmannahöfn, hóf störf þar árið 2019.
- Inga Dóra Pétursdóttir, forstöðumaður sendiráðsins í Lilongwe, hóf störf þar árið 2020.
- Sturla Sigurjónsson, sendiherra Íslands í London, hóf störf þar árið 2020.
- Árni Þór Sigurðsson, sendiherra Íslands í Moskvu, hóf störf þar árið 2020.
- Guðni Bragason, sendiherra Íslands í Nýju-Delí, hóf störf þar árið 2021.
- Hlynur Guðjónsson, sendiherra Íslands í Ottawa, hóf störf þar árið 2021.
- Högni S. Kristjánsson, sendiherra Íslands í Ósló, hóf störf þar árið 2022.
- Unnur Orradóttir Ramette, sendiherra Íslands í París, hóf störf þar árið 2020.
- Þórir Ibsen, sendiherra Íslands í Peking, hóf störf þar árið 2021.
- Bryndís Kjartansdóttir, sendiherra Íslands í Stokkhólmi, hóf störf þar árið 2022.
- Stefán Haukur Jóhannesson, sendiherra Íslands í Tókýó, hóf störf þar árið 2020.
- Hannes Heimisson, sendiherra Íslands í Varsjá, hóf störf þar árið 2022.
- Bergdís Ellertsdóttir, sendiherra Íslands í Washington, hóf störf þar árið 2019.
- Hermann Örn Ingólfsson, fastafulltrúi Íslands gagnvart Atlantshafsbandalaginu í Brussel, hóf störf þar árið 2019.
- Ragnhildur Arnljótsdóttir, fastafulltrúi Íslands gagnvart Evrópuráðinu í Strassborg, hóf störf þar árið 2020.
- Matthías G. Pálsson, fastafulltrúi Íslands gagnvart alþjóðastofnunum í Róm, hóf störf þar árið 2021.
- Jörundur Valtýsson, fastafulltrúi Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í New York, hóf störf þar árið 2019.
- Kristín A. Árnadóttir, sendiherra Íslands í Vín og fastafulltrúi gagnvart alþjóðastofnunum í Vín, hóf störf þar árið 2021.
- Nikulás Hannigan, aðalræðismaður Íslands í New York, hóf störf þar árið 2021.
- Geir Oddsson, aðalræðismaður Íslands í Nuuk, hóf störf þar árið 2022.
- Vilhjálmur Wiium, aðalræðismaður í Winnipeg, hóf störf þar árið 2022.
- Ágústa Gísladóttir, aðalræðismaður í Þórshöfn, hóf störf þar árið 2022.
Þá segir í svarinu við spurningu um hvernig starfsmannafjöldi í þessari þjónustu hafi þróast undanfarin fjögur ár að þróun starfsmannafjölda á sendiskrifstofum Íslands taki mið af stefnu ríkisstjórnar í utanríkismálum og þeim málum sem eru í brennidepli á hverjum tíma. Fjöldi útsendra starfsmanna á sendiskrifstofu sé mjög breytilegur eftir umfangi málefna og að teknu tilliti til starfs alþjóðastofnana þar sem um slíkt ræðir. Á minnstu sendiskrifstofum sé einn útsendur starfsmaður en á þeim stærstu um sex til sjö. Því til viðbótar starfa staðarráðnir starfsmenn á hverjum stað, m.a. að stoðþjónustuverkefnum, borgaraþjónustu, sem viðskiptafulltrúar og almennir starfsmenn.
Þá er Ísland með 208 ólaunaða kjörræðismenn í 98 ríkjum.