
Ísland skrifaði undir sameiginlega yfirlýsingu á framkvæmdastjórnarfundi Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) sem nú fer fram í Genf þar sem fjallað er um helstu málefni í alþjóðlegu heilbrigðissamstarfi.
Sameiginlegt erindi undir forystu Belgíu
Yfirlýsingin var flutt að frumkvæði Belgíu undir dagskrárlið um eftirfylgni pólitískrar yfirlýsingar allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna um langvinna sjúkdóma. Auk Íslands stóðu Holland, Slóvenía, Portúgal, Eistland, Finnland, Lettland og Írland að erindinu.
Í yfirlýsingunni er lögð áhersla á að hraða innleiðingu aðgerða WHO gegn helstu áhættuþáttum langvinnra sjúkdóma. Þar er meðal annars vísað til tóbaks- og nikótínnotkunar, skaðlegrar áfengisneyslu, óholls mataræðis og hreyfingarleysis. Einnig er bent á áhrif stafrænna miðla á heilsu barna og ungmenna.
Áhersla á gagnsæi og samvinnu
Þjóðirnar leggja jafnframt áherslu á mikilvægi sterkrar stjórnsýslu, gagnsæis og verndar gegn hagsmunaárekstrum í lýðheilsumálum, meðal annars í ljósi viðskiptalegra áhrifaþátta á heilsu almennings.
Með þátttöku sinni í sameiginlega erindinu undirstrikaði Ísland stuðning sinn við alþjóðlegt samstarf í samræmi við markmið WHO og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.
