ÍSLAND ÞÁTTTAKANDI Í ÁRÁS USA & NOREGS Á ÞÝSKU ÞJÓÐINA

Hallur Hallsson skrifar:

Þegar Nordstream gasleiðslan var sprengd 26. september 2022 kl. 02:03 og kl. 07:04 var bandarísk P-8 þota yfir skotmarkinu. P-8 þotan hafði tekið á loft frá Keflavíkurflugvelli og haldið til Eystrasaltsins rúmlega þriggja tíma flug. Þotan flaug yfir gasleiðsluna og síðan yfir til Póllands og var klukkustund og 20 mínútur að taka eldsneyti í 26 þúsund feta hæð. Það er afar langur tíma og til merkis um að verkið hafði ekki klárast. Eftir eldsneytistöku var þotunni flogið út yfir Eystrasaltið á ný, lækkaði flug og hóf aðflug að Nord Stream í síðara skiptið og var yfir leiðslunni kl. 07:04. Að því loknu hélt þotan vestur á bóginn yfir Danmörku áleiðis til Íslands.

Þessar upplýsingar staðfesta aðild Íslands að mesta hryðjuverki og mengunaratviki í sögu Evrópu þegar bandarískar og norskar sérsveitir gerðu árás á þýsku þjóðina og eyðilögðu rússneska gasleiðslu sem hafði fært Þýskalandi og V-Evrópu ódýrt gas. Ísland er virkur þátttakandi í stríði Vesturlanda gegn Rússlandi. Tvö atvik komu fram á jarðskjálftamælum nóttina 26.09; hið fyrra og smærra kl. 02:03 og hið síðara miklu mun öflugra kl. 07:04 þegar P8 þotan var aftur yfir gasleiðslunni. Sex af átta sprengjum sprungu. Þrjár af fjórum leiðslum eyðilögðust. Það þurfti tvö aðflug yfir Nord Stream til að ljúka verkinu. Áður hafði bauju verið varpað í sjóinn með Raytheon sónar, nokkurs konar byssugikkur.

GEIGVÆNLEG MENGUN Í EYSTRASALTI

DR – Danmarks Radio skýrir í dag frá því að ný rannsókn leiði í ljós að sprengingin og afleiðingar hennar hafi leitt til dreifingar eiturefna af hafsbotni sem nemi ellefu rúmkílómetrum. Hið gífurlega magn eiturefna sé að hafa geigvænleg áhrif á lífríki og dýralíf í Eystrasaltinu. Rannsóknin er unnin af dönskum, pólskum og þýskum vísindamönnum, þar á meðal Hans Sanderson við Árásóarháskóla. Um er að ræða hvers kyns þungmála, blý og þrávirk eiturefni, meðal annars frá botnmálningu skipa; eiturefni sem hafa safnast upp frá upphafi iðnvæðingar. Vísindamenn telja að 250.000 tonn af eiturefnum hafi þyrlast upp af hafsbotni undan ströndum Skandinavíu, Þýskalands og Póllands.

VAR ÍSLAND UPPLÝST?

Norsk, dönsk og sænsk stjórnvöld munu hafa verið upplýst en Þjóðverjum var haldið óupplýstum. Ákveðið var að P8 þotan flygi frá Íslandi en ekki USA eða Kanada. Bretar munu hafa hafnað því að þotan flygi frá breskum herflugvelli. Var Ísland upplýst um árásina líkt og Noregur, Danmörk og Svíþjóð? Bandaríkjamenn fóru frá Keflavíkurflugvelli árið 2006. Er Keflavíkurflugvöllur undir íslenskri stjórn? Eftir að Úkraínustríðið braust út hafa verið stöðug og vaxandi hernaðarumsvif á Keflavíkurflugvelli og allt að tólf P8 þotur verið samtímis á vellinum. Þotum hefur verið perkerað á svokallaðan Top-Ramp sem þýðir mikinn viðbúnað. Spurt er: Hvað er um borð í þotum á Top-Ramp? Flugvöllurinn er okkur sagt, að sé undir íslenskri stjórn Isavia svo íslenskir fjölmiðlar geta spurt um hernaðarumsvifin. Hvað veit Isavia um flug P8 þotunnar frá Íslandi sem var yfir sprengjustað kl. 02:03 og 07:04 26.09 2022?

Gaf Ísland samþykki sitt fyrir stríðsaðgerð gegn Rússlandi og Þýskalandi sem leiddi til mesta menungarslyss í sögu Evrópu frá Chernobyl í Úkraínu? Spurninguna mega fjölmiðlar beina til Katrínar Jakobsdóttur.

STRÍÐSAÐGERÐ – ACT OF WAR

Jake Sullivan öryggisráðgjafi Biden stýrði aðgerðum úr Eisenhower byggingunni gegnt Hvíta Húsinu. Umdeilt var í aðgerðarhópnum að halda þýskum stjórnvöldum óupplýstum: „…Allir litu á þetta sem stríðsaðgerð gegn Rússlandi og jafnvel Nato-þjóðinni Þýskalandi … act of war … Biden hafi valið að láta Þýskaland frjósa í pólitískum tilgangi en ekki með þjóðarhagsmuni í huga. Biden Chose To Let Germany Freeze For Strictly Political & Not National Security Purposes,“ skrifar John Basham fyrrum hermaður US Army, sérfræðingur í upplýsingatækni og veðurfræðingur.

Olav Scholz kanslari andmælti ekki þegar hann stóð við hlið Joe Biden í Washington þegar forsetinn hótaði að „…bring an end to it [Nord Stream], I promise you. We can do it.“ Kanslarinn sagði ekki orð. Í kjölfari Nord Stream hækkaði verð á gasi og tveimur dögum eftir hryðjuverkið tóku Norðmenn í notkun Baltic-gasleiðsluna til Póllands. Norskt og danskt gas flæddi til Evrópu á mun hærra verði en Rússagasið hafði kostað enda verð rokið upp við hryðjuverkið. Að sögn Sy Hersh fremsta blaðamanns Vesturlanda síðustu 50 ár, völdu norskir sérsveitarmenn og sérfræðingar staðinn undan Borgundarhólmi. Bandarískir kafarar í borgaralegum klæðum frá flota- og björgunarmiðstöðinni í Panama City Flórída komu fyrir sprengjum á Baltops22 Nato æfingu í júní 2022. Að loknu verki voru kafararnir sóttir af norskum kafbát. Það þótti of snemmt að sprengja í júní, svo finna varð leiðir til að virkja sprengjurnar þegar Biden gæfi skipun sem svo kom í september. Orkulaust Þýskaland er lamað, af-iðnvæðist í frjálsu falli líkt og Evrópa.

ÚKRAÍNA LYKILL AÐ LAMA RÚSSLAND

Í bók sinni The Grand Chessboard 1997 lýsir neo-con Zbigniew Brzezinki hvernig Úkraína sé lykill að því að lama Rússland til að tryggja stöðu Ameríku sem stórveldi 21. aldar. Sterkt Þýskaland við dyragætt Rússlands með alla sína olíu, gas og málma ógni amerískum yfirráðum yfir Evrópu. Það þurfi að loka á náin samskipti Þýskalands og Rússlands. Þarf að útskýra frekar? Nord Stream hryðjuverkið sló tvær flugur í einu höggi. Hryðjuverkið var innan við mánuði frá því norska þingið samþykkti varnarsamning við Bandaríkin. Fjórar bandarískar herstöðvar í Noregi fengu sömu stöðu og Keflavíkurflugvöllur á árunum 1951-2006; bandarísk lög og leynd gilda innan herstöðvanna: Rygge Østfold í nágrenni Moss, Sola skammt frá Stafangri ásamt Evenes og Ramsund í N-Noregi.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila