
Ný könnun Ferðamálastofu sýnir að ferðalög landsmanna voru áfram umfangsmikil árið 2025, þrátt fyrir lítilsháttar samdrátt í utanlands- og dagsferðum. Áform fyrir 2026 benda til stöðugleika, en sérstaka athygli vekur áhugi á að ferðast til að fylgjast með almyrkva í ágúst.
Færri ferðir en lengri dvöl erlendis
78% landsmanna ferðuðust til útlanda árið 2025, sem er lítil lækkun frá fyrri árum. Meðalfjöldi ferða var 2,9 en meðalfjöldi gistinótta náði 25 og hefur ekki mælst hærri. Borgarferðir og sólarlandaferðir voru algengastar og Spánn, Portúgal og Bretlandseyjar meðal vinsælustu áfangastaða.
Innlandsferðir áfram algengar
84% landsmanna ferðuðust innanlands og fóru að jafnaði í 5,7 ferðir. Flestar ferðir tengdust fríi og afþreyingu og sumarmánuðirnir voru mest nýttir. Suðurland og Norðurland voru stærstu áfangasvæðin miðað við gistinætur.
Dagsferðum fækkar lítillega
Um 70% landsmanna fóru í dagsferðir og var meðalfjöldi þeirra 6,4. Helstu ástæður voru að komast út fyrir bæinn, heimsækja vini eða rjúfa daglegt amstur.
Hátt verðlag dregur úr ánægju
Niðurstöður sýna að margir fara ítrekað á sömu staði innanlands þrátt fyrir vilja til að upplifa ný svæði. Meirihluti hyggst ekki draga úr utanlandsferðum vegna umhverfissjónarmiða. Ánægja með innanlandsferðir mælist hófleg og er hátt verðlag helsta skýringin á því að margir eru hlutlausir eða ólíklegir til að mæla með slíkum ferðum.
Ferðaáform breytast lítið milli ára
Fjórðungur landsmanna hyggst ferðast meira innanlands árið 2026 og svipað hlutfall hyggst auka utanlandsferðir. Sumarbústaðaferðir halda vinsældum en borgarferðir erlendis dragast saman á meðan sólarlandaferðir aukast lítillega.
Vestfirðir áfram eftirsóttir áfangastaðir
Vestfirðir eru áfram sá landshluti sem flestir vilja heimsækja, en Austurland og hálendið vekja einnig mikinn áhuga. Náttúra og aðgengi að útivist ráða þar mestu.
Almyrkvi dregur að ferðalanga
Töluverður áhugi er á almyrkva sem verður sýnilegur frá vestasta hluta landsins 12. ágúst 2026. Um 19% landsmanna hyggjast ferðast sérstaklega til að fylgjast með honum, en 23% ætla að horfa frá heimili sínu.
