Kristið fólk ofsóttast í heiminum – reiði út í Obama og Clinton sem tala um „páskadýrkendur“ í staðinn fyrir kristna
Hryðjuverkaárásin á Sri Lanka hefur slegið óhug út um allan heim. Þetta er stærsta hryðjuverkaárásin síðan 9/11 árið 2001. Stjórnmálaleiðtogar um allan heim hafa sent samúðarkveðjur til Sri Lanka m.a. forseti Íslands Guðni Jóhannesson. Sumir leiðtogar virðast eiga erfitt með að taka sér orðið kristinn í munn sbr. tíst frá Barack Obama og Hillary Clinton (sjá að neðan) en þau nota bæði orðið „páskadýrkandi“ í staðinn. Þegar árásin var gerð á múslíma á Nýja Sjálandi var hins vegar engin fyrirstaða að „votta samúð með múslímska félagsskapnum“ (Obama) og „Hjarta mitt brennur fyrir Nýja Sjáland og alþjóða múslímska samfélagið“ (Clinton). Margir spyrja sig á samfélagsmiðlum hvers vegna ekki megi segja frá því þegar fórnarlömbin eru kristin: „Ég veit ekki hvað „páskadýrkandi“ er. Ég þekki þá sem kristna. Þetta virðist ekkert vera nálægt sömu tilfinningum eða hvatningu um samstöðu eins og var eftir hina hryllilegu árás í Nýja Sjálandi. Ráðist er á kristið fólk út um allan heim. Við verðum að fara að vakna“ tístir Charlie Kirk. Skv. Peter Paulsson talsmanni Open Doors eru um 245 milljónir kristinna manna og kvenna ofsótt í þeim 50 löndum þar sem verst er að vera kristinn.
The attacks on tourists and Easter worshippers in Sri Lanka are an attack on humanity. On a day devoted to love, redemption, and renewal, we pray for the victims and stand with the people of Sri Lanka.
— Barack Obama (@BarackObama) April 21, 2019
On this holy weekend for many faiths, we must stand united against hatred and violence. I'm praying for everyone affected by today's horrific attacks on Easter worshippers and travelers in Sri Lanka.
— Hillary Clinton (@HillaryClinton) April 21, 2019
https://twitter.com/charliekirk11/status/1120308312778727425